Víkingablóð í æðum

Amma Magga gaf stelpunum tvo gamla "búninga", annar er Rauðhettubúningur og hinn er upphlutur. Þær systur spurðu fram og til baka um þetta, sérstaklega vildi Elísabet fá að vita allt um svona föt eins og stelpur klæddust í gamla daga.

Í kvöld spurði hún: "Má ég fara í víkingabúninginn?"

Ég var nú ekkert með þennan upphlut í huga, svo ég áttaði mig ekki alveg strax á hvað hún var að tala um. Hún lýsti víkingabúningnum nánar og ég benti henni á að þetta væri kallað upphlutur eða þjóðbúningur, ekki víkingabúningur.

Elísabetu er frekar illa við að láta leiðrétta sig og eftir örskamma stund kom spurningin: "Og hvað hét íslenska þjóðin í gamla daga?!"

U-u, mamma hennar varð að viðurkenna að líklega hefðu hér verið víkingar.

1:0 fyrir Elísabetu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hahahahaha!

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.7.2007 kl. 01:08

2 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Jamm, mér finnst hins vegar algjör óþarfi að þær geri mæður sínar sífellt kjaftstopp

Ragnhildur Sverrisdóttir, 17.7.2007 kl. 10:38

3 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Frábærar stelpur og gaman að fylgjast með þeim.

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 17.7.2007 kl. 15:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 786282

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband