19.7.2007 | 13:17
Ó hve létt er þitt skóhljóð
Allir þeir, sem hafa þungar áhyggjur af skóleysi dætranna, geta andað léttar. Við fórum í skóbúð í gær og þar fengu þær nýja strigaskó OG leðurskó. Alsælar með þetta, að sjálfsögðu. Ég hef Margréti reyndar grunaða um að hafa fallið fyrir öðru parinu af því að með því fylgdi dót, svona rammi til að teikna á með því að snúa tveimur hnöppum. Hvað heitir svoleiðis fyrirbæri? Svona teiknigræja, sem maður hristir svo bara til að losna við myndina og getur þá byrjað upp á nýtt.
Í morgun litum við Kata út um gluggann og veltum fyrir okkur hvernig systurnar ættu að vera útbúnar í fótboltaskólann í ausandi rigningu. Regngallar? Eða bara æfingagallann og svo helling af þurrum aukafötum? Átti Kata frænka þeirra og barnapía þá að hjálpa þeim að skipta um föt eftir æfinguna? Og drösla þeim svo um borgina í rigningunni?
Þetta var of flókið úrlausnarefni fyrir tvo heila, sem eru alvanir sól og sumaryl. Niðurstaðan var einföld: Systur fóru ekki í fótboltaskólann í dag. Þær fengu hins vegar að fara á náttkjólunum þegar við ókum mömmu þeirra í vinnuna. Af einhverjum ástæðum er alltaf alveg hrikalega gaman að fara út á náttfötunum. Í flíspeysu og gúmmískóm. Smart.
Ég klæddi þær nú aðeins betur áður en við héldum í leiðangur, keyptum æfingagalla og fórum með veiðihjól mæðranna í klössun. Við frúrnar ætlum að veiða lax í Grímsá í ágúst og eins gott að dusta rykið af fluguhjólunum, sem hafa ekki verið hreyfð árum saman. Það hvein stundum í þeim áður en systurnar fæddust, en laxveiði hefur ekki verið efst á forgangslistanum undanfarin sumur.
Og svo keyptum við líka bíl í morgun. Eða öllu heldur létum vita að við hefðum áhuga á að kaupa jeppa, sem reyndist vera á Ísafirði. Það hentaði okkur ágætlega, enda erum við á leiðinni þangað. Ég sagði bílasalanum að ég myndi reyna að fá einhvern ættingja fyrir vestan til að líta á gripinn og svo gæti familían flogið þangað og sótt kaggann. Við erum jú á leiðinni vestur hvort eð er. Bílasalinn kannaði málið og þá kom í ljós að vestfirski jeppaeigandinn er á suðurleið! Við kíkjum á bílinn á morgun og vonandi verður allt klappað og klárt fyrir vesturferð.
Margrét er afskaplega lítið spennt fyrir löngum akstri og heimtar að fá að fara í flugi. Við erum að gæla við að senda þær systur fljúgandi, en Elísabetu finnst það að vísu hið versta mál, henni líst ekkert á að fljúga án okkar. Kannski fer önnur mamman með stelpunum í flugi og hin keyrir? Málið er í bið.
Eitt er víst: Fyrir vestan verður mikill fjölskyldufundur. Það er ekki nóg með að Magga systir og Pétur verði þar, mamma, pabbi og Bettý, heldur verður Ásthildur systir þar með meirihlutann af sínu gengi. Ég verð að muna að segja stelpunum að Sverrir Karl frændi og krílahundurinn hugumstóri Tumi verði á svæðinu. Þá er nú sumarfríinu reddað.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 1
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 786282
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Mikið er gott að þið séuð á leið vestur núna, en ekki um Verslunarmannahelgina - þá get ég hlaupið hringinn minn án ótta við að hundkvikyndið hlaupi geltandi vitlaust á eftir mér.
Brynjar Már Brynjólfsson, 19.7.2007 kl. 13:26
Hundkvikindið fer ekki suður um leið og við, minn kæri, enda ekki okkar hundur. Ég verð bara ekki þeirrar ánægju aðnjótandi að sjá eltingarleikinn mikla, en bið Möggu systur bara að vera með myndavélina í glugganum
Ragnhildur Sverrisdóttir, 19.7.2007 kl. 14:10
Tja, nú veit ég ekki hvað íslenska orðið er, en hérna úti kallast þetta Etch-A-Sketch. Fólk hefur búið til hreinustu listaverk á þessar græjur, þó að ég hafi nú aldrei náð langt sjálf
Kolbrún Kolbeinsdóttir, 19.7.2007 kl. 22:44
Ó, auðvitað, enda fylgdi þetta Sketchers skóm! Takk
Ragnhildur Sverrisdóttir, 20.7.2007 kl. 00:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.