20.7.2007 | 00:40
Tugthús
Systur eru áskrifendur að Andrés Önd. Nýtt blað á hverjum þriðjudegi og alltaf lesið spjaldanna á milli. Margrét tekur blaðið fyrst og skoðar það MJÖG nákvæmlega. Svo koma þær sér vel fyrir og mömmur skiptast á að lesa. Margrét, sem gjörþekkir blaðið eftir rannsóknina, spyr af og til eða gerir athugasemdir á borð við: "Sko, ég tók eftir að það var lítill snigill hérna í horninu á myndinni. Er eitthvað skrifað um hann?" svona til að tryggja að mæður stytti sér ekki leið.
Í kvöld las ég sögu, þar sem Andrés hafði þungar áhyggjur af að lenda í fangelsi, betrunarhúsi, tugthúsi og alltaf þurfti að útskýra hvað hvert orð þýddi. Svo stundi Andrés einhvern tímann að hann vildi ekki "fara í bílnúmerin" og þá þurfti að útskýra að fangar búa til númeraplötur á bíla. Það tók LANGAN tíma, því útúrdúrarnir voru svo margir, það þurfti að skýra númeraplötur, fara svo yfir vinnuna í fangelsinu, með tilheyrandi spurningum systra um hvort þetta væri eins og venjuleg vinna, hvort þeir fengju borgað fyrir og hve mikið. Svo var rætt hvað fangar gætu keypt sér og hvar þeir gætu keypt það. Ég þurfti virkilega að rifja upp allt sem ég mundi úr einhverri Moggaferð á Litla-Hraun og held ég hafi getað klórað mig þokkalega fram úr þessu.
En það sem fangar kaupa? Jú, systur voru á því að þeir þyrftu nammi og kannski smá snakk og kannski gos og ég sagði þeim að sumir keyptu líka sígarettur. Það leist þeim auðvitað ekki vel á, enda afskaplega fanatískar. "Eru þá reykklefar í fangelsum?" spurði Elísabet og þar stóð ég á gati, enda gat ég ekki fyrir mitt litla líf munað hvort það voru sérstök reykherbergi á Litla-Hrauni. "Ég vona það," sagði litla tóbaksvarnanefndin, "það væri hrikalega ósanngjarnt fyrir hina fangana að fá vonda fýlu hjá sér."
Svo rifjuðu þær systur upp ferðir á kaffihús og veitingastaði, þar sem stundum var fýla og stundum ekki. Ég gat glatt þær með fréttum af reykingabanninu. Og áttaði mig á að þessar stelpur eiga ekki eftir að eiga neinar minningar um reykfyllt kaffihús og veitingastaði.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 1
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 786282
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.