26.7.2007 | 12:05
Bestu dagar
Á Ísafirði er bloggað á kaffihúsinu í Edinborgarhúsi, þar sem Helga Vala ræður ríkjum. Frábært að hafa svona alvöru kaffihús á staðnum.
Systur eru óskaplega hamingjusamar þessa dagana, þeytast um allar koppagrundir með hundana Tuma og Blöndu á hælunum, hlaupa á undan mæðrum upp í Naustahvilft, fá að róa litla árabátnum á Grundinni og í dag ætlum við að athuga hvort dvergarnir í Súkkulaðidal eru tilbúnir að lauma einhverju út úr þúfunum.
Á kvöldin kveikir Sverrir Karl frændi upp í miklum bálköstum. Mesta furða að systur skuli ekki hafa fengið reykeitrun, því þær eru einstaklega lagnar að standa alltaf með reykstrókinn upp í sig. Og stundum bindur besti frændi kassabílinn aftan í hjólið sitt og dregur skríkjandi systur um allar trissur.
Margrét segir á hverju einasta kvöldi: "Þetta var besti dagur lífs míns."
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 1
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 786282
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Bestu dagar lífs míns voru sumardagar á Ísafirði þar sem hver dagurinn toppaði annan. Margrét er ekki að fara með neitt fleipur.
Jón Steinar Ragnarsson, 26.7.2007 kl. 13:59
Frábært... Krúttin.
Annars hef ég fengið alveg nýja sýn á listamannsheitið Snoop Dogg, á meðan þú ert fyrir westan. Þú gætir verið Scoop Dogg.
hke (IP-tala skráð) 26.7.2007 kl. 14:08
Lífsmark... loksins. Margrétt segir allt sem segja þarf til að lýsa andrúmsloftinu þarna fyrir westan. Hvað er það við Vestfirði???????? I don´t know, enda aldrei komist þangað.
Takk fyrir færslu.
Jenný Anna Baldursdóttir, 26.7.2007 kl. 16:46
Bestu dagar liðnir í bili, en þeir koma aftur ;)
Ragnhildur Sverrisdóttir, 30.7.2007 kl. 09:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.