Vesturfararnir

Systur flugu sem sagt  vestur og voru komnar um kvöldmatarleyti á laugardegi, á sama tíma og mæður skemmtu sér konunglega í frábæru brúðkaupi Önnu Margrétar og Tomma. Til hamingjju, aftur! Þetta var fyrsta brúðkaup sem ég hef verið viðstödd í sjálfum Fossvogsdalnum. Mæli með því.

Við Kata nutum þess að aka einar vestur, án þess að þurfa sífellt að svara spurningunni "Hvenær komum við?" Við komum til Ísafjarðar um miðjan sunnudag og þá tóku Magga og Pétur að sjálfsögðu á móti okkur með heljarinnar grillveislu. Naut, lamb og kjúklingur, minna dugði ekki fyrir stórfjölskylduna.

Systur voru alveg með það á hreinu hvað VARÐ að gera fyrir vestan. Fyrsta skylduverkið var sund á Súganda, en þar er besta sundlaug í heimi. Hvað er yndislegra en að liggja í heitum potti og horfa beint upp í vestfirskt fjall? Snilld.

Svo var komið að gönguferðinni upp í Naustahvilft. Þetta hlupum við Magga systir auðvitað oft á sumri hérna í den, en núna kalla ég mig góða að fara einu sinni á nokkurra ára fresti. Og í gamla daga var engin sérstök umbun. Núna er hins vegar hægt að fá fjallapassa og þegar komið er upp í hvilft er stimplað í passann. Fjölskyldur geta safnað stimplum og sent svo inn passann í von um vinning. Frábær hugmynd hjá Ísfirðingum.

Gangan upp? Jú, takk, hún gekk sosum bærilega. Systur hlupu á undan, sneru við, hlupu upp aftur, sneru við, könnuðu hvort enn leyndist lífsmark með mér og Möggu og hlupu svo upp aftur. Rétt eins og tíkin Blanda og hundurinn Tumi. Kata hélt jöfnum hraða upp í hvilft, en við Magga systir þurftum að stoppa ansi oft. Ekki af því að við kæmumst ekki í einni atrennu, onei, heldur bara af því að við þurftum að rifja upp bernskustundir. Í hljóði, af því að við vorum svo móðar.

Systur voru sérstaklega spenntar að komast upp, enda sannfærðar um að Naustahvilftin sé rassafar eftir afar myndarlegan risa, sem heimsótti Ísafjörð reglulega í gamla, gamla daga. Þegar ég var ung. Þær kunna auðvitað sögurnar af því hvernig hann hjálpaði krökkunum að draga sleðana upp í hlíð að vetrarlagi, hvernig hann skvetti á þau vatni að gamni að sumarlagi og hversu vel hann nýttist heimamönnum þegar skip áttu erfitt með að komast í var í vondum veðrum. Núna er hann löngu orðinn leiður á öllum skarkalanum og búinn að flytja sig inn á hálendið, systrum til sárra vonbrigða.

Upp í Naustahvilft komst allur skarinn og þar fengum við okkur súkkulaðikex og gos. Systur voru sérstaklega nestaðar frá afa sínum, sem hafði að sjálfsögðu krafist þess að þær hefðu með sér tvöfaldan suðusúkkulaðipakka, enda enginn orkugjafi betri á fjöllum. Hann gefur þeim reyndar suðusúkkulaði við öll tækifæri, enda vantar nú ekkert í þær orkuna.

Á meðan við vorum uppi í hvilft sigldi Ásthildur systir og Matti inn í Álftafjörð og höfðu Sverri uppáhaldsfrænda með sér. Þau eru reyndar löglega afsökuð, hann er jú sonur þeirra. Og við áttum eftir að  njóta samvista við hann síðar. Til dæmis í Súkkulaðidal.

En meira um það síðar, nú eru systur í baði og best að verka af þeim ferðarykið. Og þær heimta að fá sögu. Ég hlýt að kunna einhverjar fleiri af þessum rassstóra risa.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 786282

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband