31.7.2007 | 00:06
Fámenni
Systur fóru á leikskólann í dag, en þar var nú heldur rólegt. Af tuttugu krökkum Rauðu deildarinnar voru þrír mættir, þær systur og Helena. Á Grænu deildinni, þar sem næst elsti hópurinn er, voru fimm krakkar. Átta manns á hæðinni! Enda var hópurinn allur í afslöppun að horfa á bíómynd þegar ég kom að sækja þær klukkan hálf fimm. Svo rækilega var þetta stuðlið slegið út af laginu, að myndin sem varð fyrir valinu var jólamynd!
Það rætist nú áreiðanlega úr þessu strax eftir verslunarmannahelgi. Þær systur verða bara að þrauka þangað til.
Margrét tilkynnti í kvöld að hún ætlaði að fara að halda dagbók. Sem er auðvitað ágætis hugmynd. Mér hefði samt þótt betra að hún lærði að lesa og skrifa fyrst.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 1
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 786282
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hvaða smámunasemi er þetta? - maður getur alveg haldið dagbók þó maður kunni ekki að lesa eða skrifa. Maður segir bara mömmu sinni hvað hún á að skrifa.
Þær eru yndislegar dæturnar ykkar.
Þóra Guðnadóttir (IP-tala skráð) 31.7.2007 kl. 13:13
jájá, þetta er kannski smámunasemi. En mikið óskaplega verða þessi skrif nú tímafrek. Margrét vill nefnilega alls ekki að mömmur skrifi neitt, heldur vill skrifa hvern einasta staf sjálf, þrátt fyrir brotakennda kunnáttu: "Hvernig skrifar maður "dagbók?" Hvernig er djé? Ég kann að skrifa a, en ég man ekki aaalveg hvernig á að skrifa gjé. En ég kann bjé. Ó, hvað er ó? Já, svona O með kommu, ég get það. Og ég kann að skrifa ká, það er stafurinn hennar mömmu?"
Þarna er eitt orð komið.
Guð hjálpi okkur þegar kemur að því að stafa allt sem hún upplifir á einum degi.
Ragnhildur Sverrisdóttir, 31.7.2007 kl. 15:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.