31.7.2007 | 22:07
Í skólanum, í skólanum er skemmtilegt ađ vera
Margrét átti bágt međ ađ sofna í kvöld. Hún kvíđir ţví dálítiđ ađ byrja í skóla og spurđi mig í ţaula hvort allir krakkar fćru út á leikvöllinn viđ skólann á sama tíma og hvort ţađ vćru ekki alveg örugglega kennarar ađ passa upp á ađ engin hrekkjusvín vćru ađ stríđa. Svo tók hún af mér hátíđlega loforđ ađ fylgja ţeim systrum í skólann. Ég lofađi ţví. "Alveg ţangađ til viđ verđum unglingar?" spurđi hún, en sćttist á ađ ég eđa mamma ţeirra myndum ganga međ ţeim á međan ţćr vildu og teldu ţörf á.
Getur ekki einhver bent mér á skemmtilega og jákvćđa barnamynd, ţar sem skólinn er sýndur í fallegu ljósi? Ţótt Astrid Lindgren sé í uppáhaldi hér á bć, ţá lenda söguhetjurnar hennar gjarnan í hremmingum í skólanum, Lína hegđar sér auđvitađ alveg eins og idjót og í bekknum hennar Madditar kemur upp heldur sorglegt ţjófnađarmál, svo dćmi séu tekin. Er ekki einhver mynd sem sýnir hvađ ţađ er nú gaman ađ lćra ađ lesa, skrifa og reikna, leika sér á skólalóđinni, eignast vini í bekknum, geta leitađ til kennarans ef ţörf krefur, njóta ţess ađ slúđra í matsalnum??
Plís?
Um bloggiđ
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 1
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 786282
Annađ
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hér eru bćkur sem eiga ţađ sameiginlegta ađ fjalla um skólabyrjun. kannski einhver geti komiđ ađ gagni.
Ađ byrja í skóla:
Gunilla Bergström: Hvađ varđ um Einar Ćslabelg?
Christine Nöstlinger: Skólasögur af Frans
Sören Olsson: Skólataskan hans Svans
Ingo Siegner: Litli dreki kókóshneta byrjar í skóla
Thorval, K.: Pétur og Sóley
Kormákur Sigurđsson: Stađfastur strákur
M. Reutersward: Ída er einmana
Herdís Egilsdóttir: Sigga og skessan í skóla
A. Lindgren: Lína Langsokkur
Sid Roland: Pipp fer í skóla
Stefán Júlíusson: Ásta Litla Lipurtá
Stefán Júlíusson: Kári litli í skólanum
Moni Nilsson-Brännström: Tsatsiki og mútta (sérkafli um ađ byrja í skóla)
Ingibjörg Steinunn Ingjaldsdóttir: Ýma tröllastelpa byrjar í skóla
Arnheiđur Borg: Rut byrjar í skóla
Stefán Jónsson: Skóladagar
Dorothy M. Parkin: Ranka fer í skóla
Dorita Fairlie Bruce: Dóra fer í skóla
Sempré og Goscinni: Litli Lási, fjör í frimínútum
Bestu vinir - Skemmtilegar sögur um vináttu (umfjöllun um skólann byrjar á bls. 108)
Magnea frá Kleifum: Sossa skólastúlka
Margatet Rettich: Kalli og Kata í skólanum
Ole Lund Kirkegaard: Gúmmí Tarzan (hressilegar lýsingar ţar)
Tison, Annette: Skólinn hans Barbapapa
Otto S., Svend: Börnin viđ fljótiđ
Vinkona ,,Tantanna (IP-tala skráđ) 31.7.2007 kl. 23:13
Snilld! Ég fer á bókasafniđ strax á morgun og grúska (og skila ţá Vefnum hennar Karlottu sem átti ađ skila fyrir mánuđi)
Bestu ţakkir, "vinkona tantanna", hver svo sem ţú ert
Ragnhildur Sverrisdóttir, 31.7.2007 kl. 23:42
Hér er OFVIRKUR BLOGGARI Á FERĐ!!! Segi svona, fékk nett áfall ţegar ég opnađi athugasemdarkerfiđ. Elsku dúllurnar ađ ađlagast breytingunum í huganum.
Ég var međ svakalegar áhyggjur af ţví ţegar ég var 9 ára ađ enginn mađur myndi vilja gifast mér af ţví ég var freknótt. Lausnin var ađ stela púđrinu hennar ömmu ţegar ţar ađ kćmi svo ég gengi út. Ţá kom annađ vandamál. Hvernig átti ég ađ komast úr fötunum og yfir í náttfötin ţegar mađurinn vćri inni í sama svefnherbergi og ég. Ţetta mál krafđist fleiri mánađa umhugsun. Ţar sem ég ţorđi ekki ađ viđra áhyggjur mínar viđ fullorđna fólkiđ (átti ekki svona töff mömmur eins og systurnar) ţá var ţetta gífurlegt vandamál og mikiđ álag. Hehe.
Takk fyrir skemmtilegan pistil.
Jenný Anna Baldursdóttir, 31.7.2007 kl. 23:51
Annars held ég nú ég viti hver ţú ert. Ekki margar vinkonur tantanna sem hafa jafn magnađar upplýsingar um bókakost
Takk, aftur.
Ragnhildur Sverrisdóttir, 31.7.2007 kl. 23:51
OK, frábćr lausn ţetta međ púđriđ, Jenný
Og ţetta međ náttfötin, tja, mér finnst nú ágćtt ađ ţú hafir fariđ hjá ţér viđ tilhugsunina, 9 ára gömul. Nógu snemma hverfur víst sakleysiđ. Dćs...
Ragnhildur Sverrisdóttir, 31.7.2007 kl. 23:55
Ég mćli eindregiđ međ Einari Áskeli, sem er ađ pissa í sig af stressi og spenningi yfir fyrsta skóladeginum, en kemst svo ađ ţví ađ kennslukonan er víst alveg jafn stressuđ og hann.
Anna Pála Sverrisdóttir, 2.8.2007 kl. 01:35
Ég leitađi einmitt ađ ţessari bók um Einar Áskel, en hún var ekki til
Ragnhildur Sverrisdóttir, 2.8.2007 kl. 23:31
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.