1.8.2007 | 12:42
Ída og Fúfu
Heimsókn á bókasafnið í morgun skilaði nú ekki mörgum bókum um skólagöngu. Ég tók eina, Ída er einmana, þar eru margar skemmtilegar lýsingar á lífi 7 ára skólastelpu.
Svo sá ég bók sem stelpurnar elskuðu út af lífinu á leikskólanum, Fúfú og fjallakrílin eftir Iðunni Steinsdóttur. Þær endursögðu allan lestur Rósu daglega og Margrét var óþreytandi að teikna Ríslu og Snuddu, Svaka, Sneglu, Fárbjóð, Fausa, Ponsu, Paufa, Meinfúsan og öll hin krílin.
Það var ekki fyrr en ég kom heim sem það runnu á mig tvær grímur. Það er satt best að segja mjög ólíklegt að þær systur kunni vel að meta upplestur minn á þessari bók, þótt hún hafi verið svona frábær á leikskólanum. Þær hafa marglýst því yfir, að enginn geti lesið eins og Rósa. Elísabet tók miklu ástfóstri við Bróður minn Ljónshjarta eftir lestur Rósu og varð yfir sig hamingjusöm að fá bókina í afmælisgjöf frá systur sinni í mars. Hún heldur oft á henni og strýkur, en sækist ekkert sérstaklega eftir að láta lesa hana fyrir sig.
Ætli Rósa taki að sér húsvitjanir? Húslestur á kvöldin??
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 1
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 786282
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það hlýtur að vera hægt að einkavæða og útvista það eins og annað...
hke (IP-tala skráð) 1.8.2007 kl. 16:33
Þú veist vonandi að bækurnar um fjallakrílin eru tvær... mér finnst nú heldur slæmt að þú getir ekki lesið bók nr. 2 fyrir þær fyrst þær eru búnar að fara í gegnum þessa áður?
Leifur Örn Gunnarsson (IP-tala skráð) 2.8.2007 kl. 13:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.