Hvað er verst?

Í þessu blíðviðri, sem kom okkur að óvörum, nutu stelpurnar enn á ný lífsins úti í garði. Þær fengu Maríu Hrund frænku í heimsókn frá Danmörku. Merkilegt hvað þær eru alltaf miklar perluvinkonur, þótt oft líði margir mánuðir á milli þess sem þær hittast. Þær ætla sko að hitta Maríu sem allra, allra fyrst aftur. 

Fyrir háttinn byrjuðum við á bókinni um hana Ídu, sem er einmana. Í 1. kafla var þessi ágæta stelpa kynnt til sögunnar. Þar var upptalning á alls konar hlutum, sem hún hafði gert og sagt. Kaflanum lýkur svona: "En það sem Ídu finnst verst...ja, hún veit eiginlega ekki hvað henni þykir verst..."

Elísabet var dálítið hugsi yfir þessu og spurði svo: "Af hverju veit hún það ekki? Er það af því að henni finnst svo margt vont, eða af því að henni finnst svo margt gott?"

Vonandi skýrist þetta þegar lengra er lesið.

Þær systur voru alsælar að ég hefði líka tekið Fúfú og fjallakrílin. "En ég verð að vara þig við, hún er MJÖG skrítin," sagði Margrét. "Rosa skemmtileg, en MJÖG skrítin."

Ég freistaðist til að spyrja hvort þær héldu að ég gæti lesið bókina jafn vel og Rósa. "Nei," sagði Margrét í fyllstu einlægni, "en alveg nógu vel."


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þær valda ekki þessum lesanda vonbrigðum, þær systur, fremur en endranær.  Hlæ mig máttlausa.  Þær eru svo heimspekilega þenkjandi.

Jenný Anna Baldursdóttir, 2.8.2007 kl. 01:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband