Hoja-ís

Nú er bloggað frá Danmörku, þar sem við njótum lífsins í íbúð Kristjáns bróður og Ernu. Þau eru heima á Íslandi á meðan.

Hérna rigndi ógurlega þegar við lentum, en það stendur víst til bóta. Við tókum lest frá Kastrup í húsíð í Hellerup og eftir stuttan stans fórum við á veitingastað. Stelpurnar fengu sér pizzu, að vanda. Þær fengu svo að velja sér íspinna á eftir. Margrét rýndi í frystikistuna og hrópaði svo allt í einu upp: "Sjáiði! Það er til hoja-ís!"

Við komum af fjöllum. Hoja-ís?

"Já, sjáiði," sagði Magga og benti á íspinna. Á umbúðunum var mynd af Karate kappa. Máli sínu til frekari skýringar stillti Margrét sér upp í austurlenskri bardagastellingu, gerði sig mjög ógnandi á svip og öskraði: "HOOOOOJJJ-AAAA!"

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Skarfurinn

Aldeilis flott á því, nýkomin frá Ítalíu, já sumir hafa það ansi gott.

Skarfurinn, 3.8.2007 kl. 14:20

2 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Hver er "skarfurinn?"

Ragnhildur Sverrisdóttir, 3.8.2007 kl. 20:34

3 Smámynd: Skarfurinn

Furðufugl úr Breiðholtinu, en sat í vélinni með ykkur til Trieste um daginn.

Skarfurinn, 4.8.2007 kl. 16:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband