10 sentimetrar

Við héldum afmælisdag Kötu hátíðlegan með stæl í dag, brunch á Amager torgi, síðar dinner á Hereford og Tivoli um kvöldið, en inn á milli var kíkt á stelpuföt í H&M. Þær spretta vel,  þessi krútt, svo það vantar ýmislegt fyrir skólann.

Í Tívolí var auðvitað mjög gaman. Elísabet var sátt við að stunda þau skemmtitæki sem hæfðu hennar aldri, en Margrét mændi á skelfilegasta rússíbanann, þann sem fer margar lykkjur og á hvolf, og skildi ekkert í því að hún mætti ekki fara í hann. Henni finnst svindl að ekki skuli vera til jafn ægilegur rússíbani fyrir börn, bara aðeins minni allur, "fyrir sex ára og yngri" eins og hún sagði.

Við þurfum að fá lánaða unglinga fyrir næstu Tívolí-ferð, sem geta fylgt Margréti í mesta stuðið. Helsta fjörið í kvöld var Spinnetoppen, eða ég held a.m.k. að tækið heiti það, tveggja manna sæti sem snarsnerust út og suður á ógnarhraða. Þegar við vorum komnar að tækinu benti ég henni á að þeir sem færu í það yrðu að vera a.m.k. 130 sm á hæð. En konan sem stýrði tækinu hefði greinilega ekki tekið eftir að hana vantaði næstum 10 sm upp á. Margrét sussaði á mig: "Ekki segja svona, hún heyrir það og kannski eru tölustafir eins á dönsku og íslensku!"

Hún var öll á iði þar til við komumst í sætin. Þá kom konan til að aðgæta hvort sláin fyrir framan okkur væri föst. Margrét sat teinrétt í sætinu og teygði úr sér eins og hún mögulega gat, enda fannst henni ömurlegt að hugsa til þess að vera fleygt út á síðustu stundu.

Heljarreiðin gerði næstum út af við mig, en hún skríkti bara. Einu sinni kallaði hún: "Ég skal halda í þig! Samt átt þú að halda í mig, af því að ég er barn!"

Ég hélt sko í hana, ójá, enda hélt ég að okkar síðasta stund væri upp runninn. Ég var a.m.k. viss um að ég myndi skila kvöldmatnum.

Þetta slapp allt saman. Og það var óborganlegt að sjá Margréti ganga burt á tánum, því hún var mjög hrædd um að svindlið mikla uppgötvaðist, að hana vantaði enn 10 sm upp á hæðina.

Á meðan þessu fór fram var Elísabet róleg og skynsöm. Hún stundaði skotbakkana með afmælisbarninu, vann töfrasprota og lyklakippu og gaf systur sinni kippuna.

Þær ætla báðar aftur í Tivolí við fyrsta tækifæri. Margrét er þegar farin að gæla við að svindla sér í enn stærri tæki. En þá fer ég ekki með, svo mikið er víst.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sá danski Hereford er einn af mínum uppáhalds í Köben.  Verður ekki bara reist koparstunga af Margréti í fordyri Tívólís?  Ég meina stúlkan er verðandi con-artisti.  Hehe.  Kveðjur

Jenný Anna Baldursdóttir, 4.8.2007 kl. 23:23

2 identicon

Síðbúnar afmæliskveðjur frá undirritaðri og "litla fólkinu". Fóruð þið nokkuð á brönsjinn á kaffi Evrópu? *dæs* 

hke (IP-tala skráð) 5.8.2007 kl. 16:00

3 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Það er áreiðanlega búið að dreifa mynd af Margréti til starfsmanna Tívolísins  Og jú, hke, auðvitað brönsuðum við á Evrópu. Reyndar fundum við svo enn magnaðri bröns-stað á sunnudagsmorgni á Österbrogade. Hreint magnað hlaðborð, enn betra en Evrópa.

Og mikið óskaplega er ég fegin að sjálfboðaliði hafi stigið fram, sem er til í að fara með ofurhuganum í tækin. Hef samband næst þegar við förum til Köben.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 6.8.2007 kl. 02:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband