Byggingarlist

Af einhverjum ástæðum eru þær systur mjög uppteknar af styrk húsbygginga þessa dagana. Þær óttast í sífellu að þessi og hin byggingin hrynji. Í Kaupmannahöfn voru þær á nálum, enda sögðu mömmur þeim í einfeldni sinni að þar væru margar mjög gamlar byggingar. "Getur þessi kirkja hrunið á okkur?" spurði Margrét þegar við gengum framhjá einni slíkri og Elísabet jesúsaði sig við Sívalaturn. Hvorugri leist á blikuna í Rosenborgar-kastala, en þar bitu þær á jaxlinn, enda þurftu þær bráðnauðsynlega að sjá allar stórkostlegu kórónurnar og önnur kóngadjásn sem þar eru geymd.

Í kvöld byrjaði Elísabet enn að furða sig á því að byggingar næðu yfirhöfuð að standa uppi. Hún stóð á stofugólfinu og spurði hvernig það gæti eiginlega tollað og verið loftið í herberginu þeirra. Kata flutti stuttan fyrirlestur um húsagerðarlist, sement, járnabindingar og burðarveggi. Elísabet skildi þetta samt ekki. Þá sagði Kata að víða í borginni væru hús í byggingu og við gætum bara farið í bíltúr, skoðað hús sem væri nýbyrjað að byggja og önnur sem væru lengra komin og þannig gætu þær áttað sig á því hvernig þau væru byggð.

Margrét, sem hafði fylgst með þessum umræðum af áhuga gat ekki stillt sig lengur: "Snilldarhugmynd," hrópaði hún og gaf mömmu sinni gott knús.

Tvær mömmur og tvíburasystur fara fljótlega á nýbyggingaflakk.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birna Dís

Þessi börn eru klárlega mestu krútt í heimi - þið verðið eiginlega að hafa opinn dag bráðlega og leifa fólki að hitta þessa litlu snillinga

Birna Dís , 6.8.2007 kl. 22:09

2 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

aldrei of snemmt að byrja að kynna málin fyrir verðandi arkitektum eða verkfræðingum. Getur verið að þær hafi séð fréttir um hrun brúarinnar í Minneapolis?

Jóna Á. Gísladóttir, 7.8.2007 kl. 00:59

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jenný Anna Baldursdóttir, 7.8.2007 kl. 01:03

4 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Þær gefa litlar skýringar á þessum skyndilega áhuga á burðarþoli. Ég held að þær hafi ekki séð frétt frá Minneapolis, en það getur þó vel verið. Þegar ég gekk á þær mundi Elísabet eftir sjónvarpsfrétt um hús sem var látið hrynja til grunna til að rýma fyrir nýju, en ég er nú samt eiginlega engu nær um þennan sameiginlega áhuga þeirra. Kannski skýrist þetta betur þegar við förum á nýbyggingarrúnt

Ragnhildur Sverrisdóttir, 7.8.2007 kl. 06:50

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Þær eru frábærar, ég sé þær og heyri í anda, þegar þær byrja að tala um eitthvað
þá skiptast þær á að raða upp því sem þær ætla að segja næst
og þær vita alveg nákvæmlega hvað það er.
Ég hef oft hugsað að það væru tveir eins tölvukubbar
staðsettir í heila tvíbura, svo dettur þeim eitthvað í hug
þá byrjar önnur eða báðar á sama sekúndubroti og rullan byrjar að rúlla.
Ég held að það sé nokkuð til í þessu hjá mér.
alla vega mín reynsla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 7.8.2007 kl. 09:19

6 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

já, þær eru stundum eins og Rip, Rap og Rup, önnur byrjar að fabúlera eitthvað og hin klárar setninguna. Oft er það Margrét sem byrjar, en hún kemur nú hlutunum rólega frá sér, svo Elísabet missir þolinmæðina og bunar út úr sér því sem Margrét vildi sagt hafa ;)

Ragnhildur Sverrisdóttir, 7.8.2007 kl. 12:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband