Gefðu þér góðan tíma...

Er ekki rétt munað hjá mér að Flugstöð Leifs Eiríkssonar auglýsi grimmt að fólk eigi að gefa sér góðan tíma til að rölta þar um sali, því þar sé svo margt heillandi?

Við förum til Kaupmannahafnar með hádegisflugi á fimmtudaginn. Við vorum mættar óvenju snemma, næstum þremur tímum fyrir brottför, í stað hinna hefðbundnu tveggja tíma, enda vita systur fátt skemmtilegra en að vafra um flugvelli og við mæðurnar látum okkur hafa það í þágu þeirrar hamingju.

Flugstöðin, sem hvetur fólk til að ætla sér góðan tíma fyrir brottför, er sér batterí og greinilega ekki í neinu sambandi við innritunarsystemið. Þegar við komum í brottfararsal var enginn að afgreiða þar. Við urðum að bíða þar til tveimur tímum fyrir brottför, þá var byrjað að tékka inn.

Okkur er nær að trúa auglýsingum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Þetta er þörf ábending.

Marta B Helgadóttir, 7.8.2007 kl. 11:16

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Auglýsinguna mannst þú rétt.  Þeim láðist bara að láta hana birtast í fullri lengd.  Mig minnir að hún eigi að vera einhvernveginn svona:  Gefðu þér góða tíma í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.  Byrjaðu á að njóta hins fagra arkitektúrs í innritunarsalnum, þar sem marg er hægt að finna sér til dundurs og skemmtunar.  Við bendum þér á kerrurnar okkar góðu, undir ferðatöskur, þær eru ídeal barnaleikföng og burtséð frá einum og öðrum útlimamissi þegar á þeim er klifrað, verða börnin þér ævarandi þakklát.  Þegar fjölskyldan kemst svo í Fríhöfnina munum við taka á móti þér með fýlusvip og selja þér óþarfa á uppsprengdu verði.

Flugstöð Leifs Eiríkssonar, ekki í alfaraleið en alltaf fyrir þig og þína

Jenný Anna Baldursdóttir, 7.8.2007 kl. 11:38

3 Smámynd: Gísli Sigurðsson

Þetta er nákvæmlega það sem ég hef verið að tala um við mitt fólk. Það er verið að hvetja okkur að vera tímanlega á ferðinni, en hvað svo? Ekki byrjað að skrá inn fyrr en 2 tímum fyrir flug. Kannski getur einhver svarað því hvort það eru alþjóðalög sem leyfa ekki bókun fyrr en á þessum tilskilda tíma. 

Gísli Sigurðsson, 7.8.2007 kl. 11:43

4 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Ja, ekki gilda þá þau alþjóðalög í Köben, þar sem ætlast er til að maður mæti 3 tímum fyrir brottför!

Systur sluppu ómeiddar frá klukkutíma leik í, á og undir farangurskerrum. Ekki var það flugstöðvarfólki að þakka.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 7.8.2007 kl. 12:42

5 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

þetta er náttúrlega fáránlegt.

Jóna Á. Gísladóttir, 7.8.2007 kl. 13:10

6 Smámynd: Brynjar Már Brynjólfsson

Við tæknavædda fólkið getum tékkað okkur inn í þar til gerðum "tékk-inn" kössum sem eru á hverju strái í salnum. Í þeim er hægt að tékka sig inn hvenær sem er, tær snilld.  En ég skil þinn vanda, sem ert nýlega búin að skipta úr ritvél í fartölvu, tæknin ekki alveg að vinna með þér??  - en trúðu mér þetta kemur allt saman, ég hef trú á þér! Ekki gefast upp ;-) hehehe....

Brynjar Már Brynjólfsson, 7.8.2007 kl. 13:48

7 identicon

Það skiptir sko engu máli þó að maður geti tékkað sig inn sjálfur því það þarf að vera starfsmaður sem tekur við farangrinum "baggage drop off" og það eru nú heldur engir starfsmenn þar, þannig að tékka sig inn sjálfur eða ekki, þú þarft samt að bíða!!!

Rebbi (IP-tala skráð) 7.8.2007 kl. 14:52

8 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Takk, Rebbi, fyrir að slá aðeins á hroka ungdómsins! Ég get meira að segja upplýst að ég kann alveg að tékka mig inn sjálf, en það var bara alls enginn til að taka við töskum. Ég gerði það nú samt, af því að ég vildi fá að velja sætaröð, en þá brá svo við að ég gat ekkert valið sæti, eins og vaninn er, heldur fékk úthlutað öftustu röð! Nei takk, sama og þegið. Hélt bara áfram að bíða þar til starfsmaður kom og skikkaði hann til að taka við töskum og breyta sætum.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 7.8.2007 kl. 16:07

9 identicon

Sæl Ragnhildur.

Veit ekkert hver þú ert en þín orð eru í tíma töluð. Held samt að þú sért ættuð frá Svalbarða í föðurætt. Sjálf hef ég lent í sama darraðadansinum í Keflavík í mörg herrans ár. Allt fyrirkomulagið í Keflavík, ásamt öðrum alþjóðlegum flugvellum í útlöndum, er með sama hætti. Allir starfsmenn í fjárragi og okkur, borgandi flugfarþegum, kastað inn í hinn eða annan almenninginn.

Verst fannst mér þegar ég flaug nú í júní 07 með fyrsta beina fluginu frá Nuuk-KEF-Akureyri að ég fékk ekki að fara með sömu vél áfram til AK, sem staldraði við í KEF, og áfram þaðan til AK. Ca. seks farþegar voru með norður. Varð að taka leigubíl frá KEF til REK til þess að komast áfram til AK til að ná fullbókaðri kvöldvélinni. Starfsfólkið í KEF hafði á orði hvað flugvél FÍ væri að gera út við ysta ranann. Þetta var síðdegis og nær ekkert fólk að störfum og fæstir vissu nokkurn skapaðan hlut.

kv. Kristjana Guðmundsdóttir Motzfeldt

ps. ættuð frá Hjöllum, Ögursveit.

k

Kristjana Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 7.8.2007 kl. 19:45

10 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Sæl Kristjana.

Jú, þú rekur ættir mínar réttilega. Og reyndar höfum við hist, á Grænlandi árið 1998, ef ég man rétt, þegar ég var þar á ferðalagi. En það eru nú heil 9 ár síðan.

Mér finnst þessi saga af Nuuk-KEF-AK með algjörum ólíkindum! En hagur farþegar virðist ekki alltaf ganga fyrir.

Á leiðinni heim frá Köben kom mér líka spánskt fyrir sjónir að nær öllum verslunum í fríhöfninni þar var lokað kl. tíu um kvöldið. Íslendingar, sem voru að fara heim töluvert síðar, voru nú ekki par ánægðir með það. Og þeir voru alls ekki einu farþegarnir sem sátu súrir og biðu eftir kvöld- eða næturflugi.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 7.8.2007 kl. 20:08

11 identicon

Sæl aftur og takk fyrir póst.

Jú við hittumst sumarið 1998.  Moggabloggin gefa yfirleitt ekki upp persónuupplýsingar. Fann þig í alþingismannatali.

Þekkti bæði föður ömmu þína og afa ásamt eldri föðurbræðrum. Gott fólk.

Ég var á leið í júní til AK til að fagna 35 ára stúdentsafmæli og vissi fyrirfram að ég gæti aðeins tekið þátt einn og hálfan dag af þremur. Hvað um það en daginn áður var minn bóndi ásamt föruneyti á leiguvél frá austurströnd Grænlands til að vera með í vesturnorrænni ráðstefnu á Húsavík. Leiguvélin fékk ekki að lenda á Húsavík og var snúið við til Akureyrar til tollskoðunar.

Við hjónin hittums svo 17. júní og flugum vandræðalaust til REK og skunduðum þaðan á Þingvöll/Valhöll á bíl. Má til með að nefna að áhöfn FÍ NUUK-KEF reyndu eins og þau gátu að koma mér áfram beint til AK með "tómri" vélinni og voru komin með leyfi fyrir flutningnum! 

Þetta er að verða nokkuð langt og ég held að ég fái ekki aðgengi að blog.is. En það var Baldur vefmeistari á Mogganum sem kom fyrra blogginu mínu til þín.

Bestu kveðjur

Kristjana

Kristjana (IP-tala skráð) 8.8.2007 kl. 16:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband