8.8.2007 | 23:01
Nornir í Logalandi
Við höfðum kósýkvöld í Logalandinu, borðuðum kvöldmat snemma og horfðum saman á bíómynd. Myndin var um mæðgur, sem báðar voru nornir. Elísabet hafði varann á sér allan tímann, var viss um að eitthvað hræðilegt gerðist, en nornirnar voru ljúfar og góðar og fóru létt með að vinna sigur á þessari einu vondu.
Margrét horfði opinmynnt á alla myndina, enda hefur hana alltaf langað til að vera norn. Á öskudaginn var hún í kolsvörtum nornakufli og flaug um allt á kústi. Henni fannst stórkostlegt að sjá litlu nornina í myndinni þeytast um loftið á kústinum sínum. Og henni var nú allri lokið þegar nornin litla sendi vini sínum Pizzu Margaritu með einni galdraþulu! Uppáhaldsmaturinn hennar og hið eina sem þurfti var "hókus-pókus pizzarókus" eða eitthvað í þá veruna.
Ég er hrædd um að hún dragi kústinn sinn fram strax í fyrramálið.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hahaha var þetta ekki myndin um dótturina ... hét hún ekki Bíbí.... sem var tekin inní nornaklúbbinn og fékk kristalkúluna frá þeirri vondu ..... og allt þetta nornastúss hafði slæm áhrif á starfsmannaferil heimilisföðurins ???
Við mæðgur höfðum kósýkvöld furir stuttu og horfðum á þessa mynd..... hún vakti gríðalega lukku
Hulda Dagmar Magnúsdóttir, 9.8.2007 kl. 02:03
Jú, þetta var þýska nornin Bíbí, hin ljúfa og klára mamma hennar og endurskoðandadruslan faðir hennar (merkilegt hvað hann þurfti að vera vonlaus, kallgreyið).
Fín mynd fyrir kósýkvöld
Ragnhildur Sverrisdóttir, 9.8.2007 kl. 07:05
Myndir um sterkar konur eru ekki voða algengar. Er það nema von að konur á öllum aldri hrífist með! Er pabbinn ekki bara svona mikil lufsa í samanburði? Ég bíð spennt eftir að geta komist í svona myndir með Jenny Unu.
Mig langar svo að vera norn. OMG
Jenný Anna Baldursdóttir, 9.8.2007 kl. 08:58
Nei, sterkar konur eru ekki á hverju strái. En ef þær eru það, þá vantar oftast nær mömmuna (Lína Langsokkur og Nancy Drew bara tvö dæmi af mörgum). Hvað á það á þýða? Verða konur sterkar ef þær eiga ekki mömmu? Og veikar ef þær eiga mömmu? Og algjörir aular ef þær eiga tvær mömmur?
Ragnhildur Sverrisdóttir, 9.8.2007 kl. 11:35
Það eru nokkrar mjög góðar íslenskar þjóðsögur um sterkar konur, t.d. Sagan af Hlini kóngssyni. Ég las hana fyrir yngri dóttur mína nokkrum sinnum í viku í nokkur ár og vildi hún helst ekkert annað heyra. Önnur merkileg saga er Sagan af Hildi góðu stjúpu, sem ég las eitt sinn fyrir eldri dóttur mína og reyndist ein merkasta lestrarupplifun okkar beggja.
Elías Halldór Ágústsson, 9.8.2007 kl. 17:59
Takk fyrir ábendinguna Elías, ég er þegar búin að prenta sögurnar út
Ragnhildur Sverrisdóttir, 10.8.2007 kl. 10:30
Svo verðurðu að lesa þessa grein: http://www.endicott-studio.com/rdrm/forconte.html
Elías Halldór Ágústsson, 10.8.2007 kl. 14:08
jahérnahér, ekki hafði ég hugmynd um tilvist þessara ævintýrakvenna! Takk fyrir sendinguna
Ragnhildur Sverrisdóttir, 10.8.2007 kl. 14:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.