10.8.2007 | 10:29
Fjölmiðlafamilía
Systur bíða spenntar eftir "Regnbogadeginum", eins og Gay Pride heitir á þeim bænum. Þær hafa farið nær árlega í gleðigönguna, í fyrsta sinn rúmlega fjögurra mánaða. Einu sinni sátum við heima, en það var þegar rigndi og rigndi og rigndi og rigndi. Við bjuggum þá í Hlíðunum og ætluðum svo sannarlega að mæta, en þegar við Kata vorum búnar að koma systrum fyrir í kerrum og ætluðum að ganga af stað fundum við að við vorum báðar orðnar blautar inn að beini, þrátt fyrir góðar yfirhafnir. Maður lifandi, þetta var sko rigning! Við sáum fram á heldur auman dag í bænum með 2ja eða 3ja ára kríli (hvort var þetta 2003 eða 2004?) svo við komum okkur bara inn aftur. En ansi var nú samt súrt að missa af gleðinni, því hún er alltaf jafn mikil.
Við ætlum auðvitað í gleðigönguna á morgun -og myndum fara jafnvel þótt spáin væri ömurleg. Systur eru orðnar svo stórar að þær geta alveg boðið náttúruöflunum byrginn, alla vega innanbæjar
Í morgun voru systur sestar við útvarpið klukkan 7, til að hlusta á mömmu sína tala um Regnbogadaginn. Kata var sem sagt í stuttu spjalli á Morgunvaktinni á Rás 1. Stelpurnar voru hamingjusamar að heyra í henni í útvarpinu og ljómuðu allar þegar hún nefndi þær og mig. Alveg stórkostlegt að heyra talað um sjálfa sig í útvarpi, eins og gefur að skilja.
Í gær voru þær í fyrirsætuhlutverki hérna heima, því þá vorum við þrjár myndaðar í bak og fyrir, vegna viðtals við mig sem birtist um helgina. Jamm, það er sama hvort þið hlustið á útvarp eða lesið blöðin þessa dagana, við erum alls staðar!
Og helsti kosturinn við að vera á mynd í dagblaði? Einfalt mál: "Elsa klippir myndina ábyggilega út og setur hana á vegginn í leikskólanum," tilkynnti Elísabet.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hvar birtist viðtalið kona góð? Vill endilega ekki verða af því en þykir verra að þurfa að lesa mörg blöð til að finna það
Til hamingju með morgundaginn
Jenný Anna Baldursdóttir, 10.8.2007 kl. 10:50
Segi sama og Jenný - hvar verður viðtalið?
Birna Dís , 10.8.2007 kl. 10:57
Viðtalið verður í Blaðinu á morgun. Frítt í öll hús. Sem auðvitað vekur upp þá spurningu hvort fólk væri til í að borga fyrir að lesa við mig viðtal.
Ég mun líklega aldrei komast að svarinu.
Ragnhildur Sverrisdóttir, 10.8.2007 kl. 13:15
Allt er best sem ókeypisast. The best things in life are free, eins og Bítlarnir sungu fyrir margt löngu. Rosalega verð ég mætt út á tröppur á töflum og vatteruðum slopp í fyrramálið til þess að taka á móti pólsku blaðburðarpersónunni sem dreifir Blaðinu. Dobsche!
hke (IP-tala skráð) 10.8.2007 kl. 14:17
Í fyrramálið? Ekki mjög snemma þó?
Eitt orð: Rauðvín
Ragnhildur Sverrisdóttir, 10.8.2007 kl. 14:37
Til hamingju með daginn. Ég elska að lesa litlu sögurnar af fjölskyldunni þinni.
Þórgunnur Hjaltadóttir (IP-tala skráð) 10.8.2007 kl. 14:59
Eða, nei... best að átsorsa móttökunefndina í fyrramálið, það er vissara.
Double dobche!
hke (IP-tala skráð) 10.8.2007 kl. 15:16
Til hamingju með daginn á morgun og líka daginn í dag og í gær. Þeir eru svo vondir við mig á Akranesi að ég fæ nánast aldrei blaðið á laugardögum. Hlýjar kveðjur á púkana þína sem eru oftar en ekki uppruni skemmtilesturs hér á síðunni.
Edda Agnarsdóttir, 10.8.2007 kl. 15:52
Takk fyrir góðar kveðjur, þetta verður hátíðisdagur!
Megi Blaðið renna lipurlega um allar bréfalúgur, jafnt á Skaga sem annars staðar
Ragnhildur Sverrisdóttir, 10.8.2007 kl. 15:54
Til hamingju með hátíðisdaginn á morgun :) Okkur þykir einstaklega skemmtilegt að lesa sögurnar um stelpurnar ykkar og lífið í Logalandinu. Kominn tími á að kvitta fyrir sig.
Ragnhildur og Inga (IP-tala skráð) 10.8.2007 kl. 21:23
Til hamingju með Gay pride daginn og alla aðra daga í lífi ykkar.
Var að lesa viðtalið við þig, það var frábært, og ég ætla, þótt einhverjum
hugnist ekki svona væmni að segja:
"Þú ert frábærlega vel gefin, alveg einstaklega orðheppin og mjög góður penni".
Ja hérna held ég sé Pollýanna í dag.
Verð reyndar alltaf glöð er ég sé eitthvað fallegt og það sá ég áðan.
Þær eru yndislegar stelpurnar ykkar.
Það sagði eitt sinn við mig maður, það er ekki sjálfgefið að eignast
falleg börn og ekki að þau séu einnig vel gefin,
Þetta er alveg rétt hjá manninum, en mér finnast öll börn yndisleg.
Kveðja til ykkar allra.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 11.8.2007 kl. 13:12
Æ, takk fyrir, Guðrún Emilía, bæði fyrir falleg orð í minn garð og stelpnanna okkar. Mér hlýnar um hjartarætur við svona lestur
Ragnhildur Sverrisdóttir, 11.8.2007 kl. 22:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.