10.8.2007 | 20:21
Risastórt Tívolí
Marta María vinkona og nágranni er í heimsókn hjá systrum. Þær voru að bera saman sumarfrí, allar búnar að vera á heimshornaflakki í sumar. Elísabet fór mikinn í lýsingum á Tívolí í Kaupmannahöfn: "Það er svo stór garður að maður gæti sko verið þar í tvo eða þrjá daga að labba. Og meira að segja þótt nóttin væri með!"
Til allrar hamingju mótmælti Marta María ekki einu orði, enda hefur hún sjálf komið í Tívolí og vissi að þetta var hárrétt.
Svo fóru þær að metast hver hefði verið hræddust í tækjunum. Ég hélt nú reyndar að þær mynd metast um hugrekki, en Elísabet og Marta María voru uppteknastar af því hvor hefði verið smeykari. Elísabet gat sagt frá því að hún hefði farið í Parísarhjól og farið að gráta, "en núll ára barn fór ekkert að gráta!" Þetta fannst Mörtu Maríu merkilegt að heyra.
Margrét skildi ekkert í þessu fjasi í þeim, enda aldrei smeyk í Tívolí, jafnvel þótt tækin séu risavaxin og garðurinn svo stór að þrír sólarhringar duga varla til að fara um hann allan.
Nú eru þær allar úti í garði á trampólíni. Öll fyrirheit um að koma þeim snemma í háttinn virðast vera að gufa upp.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hahaha ég var hræddust í rússíbananum enda fór ég ekki í neitt annað tæki!
Edda Agnarsdóttir, 11.8.2007 kl. 01:16
Frábært viðtal og myndirnar algjört bjútí! Ég vissi ekki að dætur þínar væru tvíburar. Það eru nokkrir í minni ætt og í gær var ég að fá fréttir af væntanlegum þríburum án allrar aðstoðar, fyrstu börn foreldranna.
Edda Agnarsdóttir, 11.8.2007 kl. 10:15
Til hamingju með daginn Ragnhildur. Frábært viðtal við þig í Blaðinu í dag.
Ásdís Haraldsdótti (IP-tala skráð) 11.8.2007 kl. 11:25
Takk, takk og takk fyrir allar góðar óskir og kveðjur. Mikið er nú gott að vita af öllu þessu góða bloggfólki.
FRÁBÆR dagur í miðborginni. En núna þýðir ekki að vera að blogga, mest að drífa sig aftur út í 17 stiga hitann og blíðuna í garðinum.
Ragnhildur Sverrisdóttir, 11.8.2007 kl. 18:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.