11.8.2007 | 22:47
Gleðigangan
Við vorum snemma í því, mættar á Hlemm um hálf tvö. Magga systir kom með okkur. Við lögðum bílnum við Kjarvalsstaði og röltum Rauðarárstíg. Þegar við nálguðumst Hlemm benti ég stelpunum á að þar væri gangan, ég sæi fána og blöðrur. Elísabet hafði áhyggjur: "Ef við göngum og gangan er að ganga, hvernig náum við henni þá?" Ég sagði henni að gangan væri ekki lögð af stað (og var þar með ekki orðin "ganga",skiljiði?)
Öll hersingin lagði af stað og við vorum viðbúnar að skjóta okkur inn í hana. En biðum kannski of lengi. Við vorum jú ekki "Dykes on Bikes", ekki heyrnarlausar og samkynhneigðar, ekki teljumst við til aðstandenda samkynhneigðra (nema Magga systir en hún vildi vera samferða okkur), við tilheyrum ekki áhugafólki samkynhneigðra um trúmál og svo mátti lengi telja. Hver flotinn á fætur öðrum fór hjá, en loks þegar Páll Óskar sigldi framhjá með dúndrandi diskótónlist og dansandi gaura á pallinum, þá röltum við á eftir. Guð má vita hvað það gerir okkur Svona fer þegar maður analíserar allt fjandans til.
Stelpurnar voru hrifnar af öllum þessum skrautlegu og stundum skrítnu búningum. "Svona á fólk sko að skemmta sér!" lýsti Margrét hrifin yfir og dillaði sér svo í takt við tónlistina hjá Páli Óskari.
Um miðjan Laugaveg vorum við farnar að dragast verulega aftur úr Páli Óskari og co og þá skelltum við okkur niður á Hverfisgöngu, gengum rösklega niður á Arnarhól, settumst niður í blíðunni og biðum rólegar eftir að gangan kæmi til okkar. Mikið rosalega var þetta allt flott og vel heppnað! Og verður fjölmennara með hverju árinu! Og veðrið, maður lifandi!!! Og hvað er hægt að setja mörg upphrópunarmerki í eina málsgrein??!!!
Á heimleið upp Laugaveg voru systurnar mjög uppteknar af að stoppa mömmu sína í að fara inn í "pæjubúðir". Þær láta alltaf eins og Kata megi ekki sjá slíka búð án þess að hverfa þangað inn í marga tíma. Þegar við gengum framhjá versluninni Evu létu þær verulega ófriðlega, Elísabet togaði í Kötu af öllu afli og Margrét ýtti á eftir. Kata streyttist auðvitað á móti, en þarna var klárlega við ofurefli að etja. "Sjúkk, ég fékk alveg andaköst þegar ég sá hvað þetta var mikil pæjubúð," sagði Elísabet. Og saup hveljur til að útskýra andaköstin sín betur. Eva gæti nýtt sér þetta í auglýsingar: "Eva: Þar sem fötin eru svo töff að fólk fær andaköst!"
Eftir gleðigöngu tók blíðan á pallinum góða við. Systur voru nálægt því að leysast upp í heita pottinum á meðan Kata las og ég tók dugnaðarkast og málaði einn vegg. Við settum nefnilega upp ný útiljós og þau gömlu skildu eftir ljót för. Og fyrst ég var búin að flikka upp á vegginn í garðinum skellti ég mér framfyrir hús og málaði líka vegginn þar sem önnur tvö ný ljós eru.
Þetta var ekkert frábær hugmynd, svona eftir á að hyggja. Ég sé fram á að þurfa að mála allt húsið, því samanburðurinn við þessa tvo nýmáluðu veggi er vondur.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Til hamingju með daginn og takk fyrir skemmtilegt viðtal í Blaðinu í dag.
Björg K. Sigurðardóttir, 11.8.2007 kl. 23:22
Sæl Ragnhildur,
Ég verð bara að kvitta fyrir mig í dag, þetta er ein af mínum uppáhaldsbloggsíðum. Vil byrja á því að óska ykkur fjölskyldunni innilega til hamingju með dagnn (það er sko ennþá 11.ágúst hérna í USA þar sem ég bý). Ég hef alveg rosalega gaman af því að lesa um dætur ykkar og benti meira að segja móður minni á síðuna þína, en hún er leikskólakennari og þekkir því þennann aldur mjög vel. En hvað um það ég vildi bara aðeins láta vita af mér og óska ykkur til hamingju með daginn. Svo heitir líka mamma mín og dóttir mín því fallega nafni Ragnhildur.
kveðja frá Los Angeles,
Sirrý
Sirrý Jónasdóttir (IP-tala skráð) 11.8.2007 kl. 23:58
Hæ og líka til hamingju með daginn í dag. Þær hamingjuóskir lúta að tækifæri til húslesturs sem gafst óvænt, en þá er ég að tala um innlegg í margra ára greinaflokk með rómverskum tölustöfum *hóst* *hóst* sem birtist í ónefndu blaði, mörgum lesendum eflaust til óblandinnar gleði.
Og tak for sidst, det var dejligt.
hke (IP-tala skráð) 12.8.2007 kl. 14:08
Var að lesa viðtalið við þig í Blaðinu tekið af Kolbrúnu mig langar að segja þér að mér fannst þetta viðtal alveg yndislegt, svo mannlegt og mikil hlýja. Ég óska þér innilega til hamingju með þessar fallegu dætur og lífið.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.8.2007 kl. 14:48
Til hamingju með daginn í gær. Ég átti yndislegan dag í miðbænum með stelpunni minni og vinkonu hennar. Skemmtilegt viðtalið. Takk fyrir það.
Jóna Á. Gísladóttir, 12.8.2007 kl. 17:21
Takk og takk. Og enn meira takk. Og mikið óskaplega er ég sammála því að ég heiti fallegu nafni
HKE, ég veit alveg til hvers þú vísar. Hef verið að treina mér lesturinn, en mun leggjast í hann í kvöld.
Já, Anna, ég hefði víða fallið inn í hópinn, en ákvörðunarfælni á hæsta stigi varð til þess að ég endaði aftast. Kona mín er nú duglegri að taka af skarið, en ég hikaði. tafsaði, jammaði og hummaði þar til gangan var nánast öll farin hjá!
Takk fyrir hamingjuóskir til mín, konu og dætra, ég veit nú bara ekki hvað ég á að segja við öllum þessum ljúfu orðum sem hellast yfir mig
Ragnhildur Sverrisdóttir, 12.8.2007 kl. 17:53
Frábær ganga og gaman að hitta þig augliti til auglitis á Arnarhólnum. Við vorum líka fyrir aftan Pál Óskar og mikið tjúttað og klappað. Og sólin skein við okkur..
Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 12.8.2007 kl. 18:15
Já, þetta var sko aldeilis frábær dagur! Verð nú að játa að þjóðarstoltið minnkar ekki við það að sjá hvað Gleðigangan er orðin mikil fjölskylduskemmtun. Til hamingju Íslendingar með flottan dag í gær!!!
P.S Takk fyrir skemmtilegt viðtal í Blaðinu :o)
Inga Rós Antoníusdóttir, 12.8.2007 kl. 20:28
Njóttu þeirra bara mín kæra þú átt þau skilið.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.8.2007 kl. 21:02
Jenný Anna Baldursdóttir, 12.8.2007 kl. 22:59
Gaman að sjá ykkur á laugardaginn
nú þarf bara að draga ykkur á ballið með Palla á næsta ári
Það þýðir ekki að kveikja bara upp í arninum og gæða sér á rauðvíni og ostum ÖLL kvöld.. sem minnir mig nú á það að það hlýtur bara að fara að koma að slíku fljótlega.. er það ekki?
Leifur (IP-tala skráð) 16.8.2007 kl. 09:51
Jújú, það styttist í það, svona 10 dagar kannski?
Ragnhildur Sverrisdóttir, 16.8.2007 kl. 11:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.