12.8.2007 | 22:48
Súrefnið í sveitinni
Ég fór með stelpurnar í Skorradal í dag, í bústað Bryndísar systur og Guðna. Þar var lunginn af stórfjörskyldunni, mamma, pabbi, Bryndís, Guðni, Sverrir Páll sonur þeirra með Emilie konu sinni og litlu dætrunum Sölku og Sísí, sem ég hafði aldrei séð áður (þau búa í Svíþjóð), Kristján bróðir, Erna, Tryggvi, Ragnar og María, Magga og Kristján sonur hennar, Ásthildur og Sverrir Karl, Greta Lind, Jói og Viktor Páll. Úff, vona að ég gleymi engum. En mikið var nú gaman að troðast öll á pallinn og spjalla í blíðunni
Systur voru dálítið súrar yfir að mamma þeirra þyrfti að vinna á þessum dýrðardegi, en tóku gleði sínar þegar við komum uppeftir í frændsystkinastóðið. Þegar Margrét stökk út úr bílnum dró hún djúpt andann og sagði: "Þetta er nú eitthvað annað en í borginni!"
Ég spurði hana hvað hún ætti við og þá sagðist hún vera að tala um hvað það væri gott veður. "En það var nú svona ljúft og gott heima á palli áðan," sagði ég, sem aldrei má heyra nokkurn mann hallmæla veðurblíðunni í Fossvogi.
"Já, en það er betra súrefni í sveitinni," sagði Margrét. Og ég gat ekki mótmælt því.
Þær systur eru alla vega farnar að átta sig á því hvað súrefni er. Einu sinni neitaði Elísabet að borða maltbrauð, af því að það væri svo mikið súrefni í því. Eða kannski ekki beint súrefni, eins og hún útskýrði, heldur var eins og einhver hefði reykt í brauðið. Og það fannst henni skiljanlega ekki gott.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Auðvitað hefur hún ekki viljað borða brauð með reykbragði í,
en hvað ég skil hana annað hvort borðar maður gott rúgbrauð eða
fransara. það hlýtur að hafa verið stórkostlegt hjá ykkur í Skorradalnum.
Þið eruð heppnar að eiga svona stóra fjölskyldu, börnin fá svo mikið út úr því.
Alla vega er það svoleiðis hjá okkur ég verð ekki vör við neinn söknuð
hjá tvíburunum mínum þær byrjuðu að kenna sig við mömmu sína er þær voru 11-12.ára
og í dag eru þær löglega Halldórudætur. Hef ég ekki séð stoltari dömur er þær löbbuðu
til Sýslumanns að borga dóminn þar að lútandi,
með sitt hvort depitkortið og fyrstu launagreiðsluna sína í vor inn á þeim.
Þær eru 16.ára og eru að byrja í menntaskóla.
Mér finnst það hafa verið í gær að ég tók á móti þeim.
Svo stelpur mínar,
njótið árana því þið verðið búnar að ferma þær áður enn þið vitið af.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 15.8.2007 kl. 13:25
Já, með þessu áframhaldi fermast þær í næstu viku, þetta líður svo hratt!
Ég er alveg sammála því að stórfjölskyldan skiptir krakka gríðarlegu máli, alla vega á það við um þær systur.
Ragnhildur Sverrisdóttir, 15.8.2007 kl. 16:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.