Með krúttum

Kristinn Ingvarsson ljósmyndari er hreinn snillingur, margverðlaunaður ljósmyndari, ekki síst fyrir portrett, fyrir nú utan að vera einn ljúfasti samstarfsmaður minn af Mogga. Ég varð glöð þegar hann birtist hér til að mynda fyrir viðtalið við Blaðið um helgina. Hann tók margar myndir, en ég er ánægðust með þessa mynd af okkur mæðgum. Elísabet hógvær, Margrét dálítið eins og hún sé að rifna úr stolti. Hún er í framan eins og mér líður innan í mér þegar ég hugsa um þessi stelpuskott Grin Jújú, ég er svosem nógu montin á svipinn sjálf...

web_KRI_RSV_02


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Að maður tali nú ekki um hvað hann er góður að fótósjoppa.

hke (IP-tala skráð) 12.8.2007 kl. 23:20

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já þetta er alveg frábær mynd

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.8.2007 kl. 23:44

3 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Vonandi færðu margar myndir hjá honum, það er svo gaman að eiga svona. Þessi mynd af ykkur er alveg himnesk!

Edda Agnarsdóttir, 13.8.2007 kl. 00:01

4 identicon

Flottar mæðgur.....mér finnst hina mömmuna vanta á myndina.....! Samt eruð þið 3 mjög fínar og sætar á myndinni.

Berglind (IP-tala skráð) 13.8.2007 kl. 00:17

5 Smámynd: Gestur Gunnarsson

 Sæl.

Þetta er snilld hjá Kristni.

Kv.

Gestur

Gestur Gunnarsson , 13.8.2007 kl. 11:53

6 identicon

Gríðarlega efnilegar dömur, nema þessi í miðjunni náttúrlega. Flott viðtal og myndir. Magnafsláttur óskast.

Með kærri kveðju,

Steini Briem (IP-tala skráð) 13.8.2007 kl. 12:39

7 identicon

takk fyrir hressandi og skemmtilegt viðtal,ekki síst þegar þú ræðir um börnin og það að láta sér leiðast sé einfaldlega partur af lífinu stundum,skynsamlega talað.

hallgerður pétursdóttir (IP-tala skráð) 13.8.2007 kl. 13:21

8 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Jájá, hver er efnilegur og hver ekki, það er auðvitað spurningin...

Ég get alla vega upplýst að tvær okkar þurfti ekkert að "fótósjoppa" eins og hke er svo vinsamleg að nefna.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 13.8.2007 kl. 13:28

9 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Frábær mynd af ykkur mæðgum! Mikið ertu rík að eiga svona æðislegar stelpur!

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 13.8.2007 kl. 15:52

10 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

ójá, ég er sko lukkunnar pamfíll

Ragnhildur Sverrisdóttir, 13.8.2007 kl. 17:33

11 identicon

Já, með vini eins og mig, hver þarf óvini? Enda er ég bara bloggvinur. The "easy kind". Svo dreg ég þetta líka allt tilbaka. Bara alveg.

Annars minnir þetta mig á ljósmyndarann sem sagði víst, "ég er ekki lýtalæknir", þegar hann var orðinn leiður á ótilgreindum viðmælanda. Keli sagði þessa nokkuð oft, gæti hafa verið flökkusaga. Ég flýti mér að bæta við, að hún á ekkert erindi hér. Bara ekkert.

Á meðan við erum ekki komnar með collagen í varirnar, er sjálfsagt allt í sóma. Um daginn var ég nefnilega að tala við manneskju sem þurfti að koma því að, að ég væri að verða fimmtug. En ég hafði hugsað mér að verða 45 fyrst.

hke (IP-tala skráð) 13.8.2007 kl. 19:58

12 identicon

Mjög fín mynd af  flottum stelpum.  En það sárvantar þá fjórðu!  Væri gaman að fá almennilega fjölskyldumynd!  Ragnhildur! Þú hefur ábyggilega höndlað sannleikann:  Að lífið snýst um ástina, það sem ástin gefur og skiptir máli.  Ástin gefur lífinu lit og veitir kraft til að takast á við allt, sem á vegi manns verður.  Mér líkar vel að þú segir þig vera með gamaldags fjölskylduform - borða alltaf saman kvöldmat o.s.frv.  Er það nokkuð gamaldags?  Er það ekki einfaldlega gott líf að hafa hlutina í föstum skorðum?  Börnin vita sinn stað í fjölskyldunni (en við erum börn!) og að þau eiga frábærar mömmur (10 ++ fyrir að vera góðar mömmur). 

Ástúð í matargerð er nú bara yndisleg.  Og þakka þér fyrir að skrifa og leyfa okkur að vera svolítið með í lífinu í Logalandi.  Og annars staðar þar sem ykkar leiðir liggja.  Ísafjörður er nú eiginlega flottari en Ítalía segir einhversstaðar. 

Kær kveðja.

Auður

Auður (IP-tala skráð) 13.8.2007 kl. 23:03

13 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Já, það vantar auðvitað Kötu á myndina, en hún var í vinnunni þegar myndin var tekin

Ragnhildur Sverrisdóttir, 13.8.2007 kl. 23:25

14 identicon

Það þarf sko ekkert að fótósjoppa hér, þrjár glæsilegar dömur á ferð!

Erla (IP-tala skráð) 14.8.2007 kl. 13:58

15 identicon

Ég var algjörlega heilluð af þessari mynd af ykkur mæðgum  þegar ég sá hana í Blaðinu. Og viðtalið sjálft var með þeim betri sem ég hef lesið í langan tíma. Takk fyrir bloggvináttu  

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 15.8.2007 kl. 16:38

16 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Takk sömuleiðis

Ragnhildur Sverrisdóttir, 15.8.2007 kl. 17:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband