13.8.2007 | 23:33
Heilasprengjur
Þegar þær systur voru að fara að sofa vildu þær ólmar spjalla dálítið og flissa. Ég kúrði hjá Margréti, sem þurfti að spyrja um ALLT sem viðkemur skóla. Hún er dálítið stressuð og þarf að vita nákvæmlega fyrirkomulagið á öllu ("Segja kennararnir manni að fara í pollagalla í frímínútum eða á maður bara að gera það sjálfur?" og "Ég kann ekki alveg allt, stundum þarf ég að spyrja um suma stafina, eins og É. Ég kann heldur ekki landafræði. Hvað er annars landafræði? Er í lagi að kunna ekki svona?" og "Borða kennararnir með manni í matartímanum?")
Ég sagði henni að skólinn væri nú einmitt til að læra alla skapaða hluti. "Allt?" spurði hún og ég sá á svipnum á henni að ég var gengin í gildru. "Líka hvernig á að missa tennurnar?"
Þetta fannst henni sjúklega fyndið.
Á meðan voru Elísabet og Kata í flisskasti í hinu stelpurúminu. Elísabet skemmti sér svo konunglega að hún hafði áhyggjur: "Mamma, getur heilinn í manni sprungið ef maður hlær of mikið?"
Nei, Kata hafði nú aldrei heyrt af slíkri gleðisprengingu. En spurði, hvort Elísabet myndi hætta að leika við sig, ef hætta væri á sprengingu. "Já, auðvitað," svaraði Elísabet að bragði.
Kata sannfærði hana um að fátt væri hollara heilanum en góður hlátur.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
það er mjööööög mikilvægt að læra allt um tannmissi. Og æfa sig í honum líka.
Jóna Á. Gísladóttir, 14.8.2007 kl. 01:13
Sæl Ragnhildur, Kata, Margret og Elisabet
Eg heiti Hildur og a dottur sem heitir Rebekka Lara og verdur 4. ara i November. Eg er vinkona Gretu Lindar og hef tvi fylgst med ykkur ur fjarlægd sidustu ar! (Einnig fra mømmu sem tekkir Køtu)
Vid buum eins og er i Danmørku. Eftir ad vid fluttum ut, fann eg siduna tina- ykkar. Hef lengi ætlad ad senda kvedju. Hvad tad er gaman ad lesa um Margreti og Elisabetu, og allt annad sem tu skrifar.
Kvedja fra Køben- 25 stiga hiti og sol
Hildur Bjørg
Hildur Bjørg (IP-tala skráð) 14.8.2007 kl. 09:11
Uss, ég held ég viti nú hver þú ert! Ekki nóg með að ég viti það gegnum Gretu Lind, heldur útskrifaðist ég úr lögfræðinni með Rósant og tók viðtal við mömmu þína fyrir Moggann fyrir sléttu ári
Þetta eru svo mikil tengsl, að við teljumst bara næstum náskyldar! Bið að heilsa þessu gengi öllu saman.
Kveðja úr Fossvoginum, 12 stig og sól.
Ragnhildur Sverrisdóttir, 14.8.2007 kl. 10:18
Já, Jóna, allt er þetta afar mikilvægt. Margrét er hins vegar enginn nýgræðingur á sviði tannmissis, er með þetta stóra og fína skarð. Elísabet er hins vegar fastheldnari á sínar tennur, hún er komin með tvær fullorðinstennur í neðri góm án þess að nokkur barnatönn hafi vikið! Ekki gott, en því verður bjargað.
Ragnhildur Sverrisdóttir, 14.8.2007 kl. 10:39
Er nokkuð til skemmtilegra í heiminum en að fá að tala við þessi blessuð börn? Svo stækka þau og verða unglingar og eru alveg jafn skemmtileg ef maður gefur sér tíma til að tala við þau. Bloggið er líka frábær leið til að skrásetja gullkornin. Ég held að margir foreldrar sjái svolítið eftir að hafa ekki verið duglegir að skrifa þau niður. En hér kemur eitt gamalt og gott sem aldrei gleymist frá minni sem er núna 15. Svona söng hún fyrir allmörgum árum vísuna góðu: "Höfuð herðatré og tær, tré og tær ....
(Henni er ekki skemmt þegar ég rifja þetta upp).
Ásdís Haraldsdóttir (IP-tala skráð) 14.8.2007 kl. 14:43
Ég man hvað ég hlakkaði tryllingslega mikið til að fara í skólann þegar ég var lítil. Skil alveg þennan spenning í stelpunum þínum.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 14.8.2007 kl. 16:55
Frábært blogg eins og venjulega þegar skrifað er um krílin þín!
Ég hef svo gaman af að lesa þessar færslur.
Edda Agnarsdóttir, 14.8.2007 kl. 20:24
Sælar. Stórir dagar framundan hjá sex ára trítlunum okkar. Mín biður um tösku með brúsahaldi, lyklakippu og hólfi fyrir handklæði. Hvað er ég gömul þegar ég má fá gemsa og bankakort? Og hvenær get ég fengið lykil og Ipod? Hún á reyndar 17 ára gellusystur en almáttugur. Hún er að flýta sér að verða fullorðin. Ekki hætta að blogga um dæturnar, þetta er skemmtun mín með morgunsopanum í fríinu hér á Nesinu. Og farðu nú að bjóða D.lífinu á pallinn áður en ég hætti formlega um mánaðarmót. Við bíðum allar spenntar.
Bogga
bogga (IP-tala skráð) 14.8.2007 kl. 20:57
Þetta blogg tók við af stílabókinni, sem við Kata höfðum skrifað öll gullkornin inn í. Það er einfaldlega svo miklu þægilegra að henda öllu jafn óðum inn á tölvuna. En ef maður gerir það ekki strax, þá gleymist þetta því miður oft. Allt nema svona einstakir gullmolar eins og söngurinn um "herðatrén"
Stelpurnar eru ekki eins veraldarvanar og sú sem á 17 ára systur, þær vita varla hvað bankakort er, átta sig ekki á að það sé eftirsóknarvert að eiga gemsa og sýna ipod engan áhuga. Þær hlustuðu að vísu aðeins á ipod í fyrra. Þá var Margrét bara með Sylvíu nótt, á repeat aftur og aftur og aftur og aftur. Elísabet var með Katie Melua, hlustaði á lagið um reiðhjólin í Peking og varð dreymin á svip.
Ragnhildur Sverrisdóttir, 14.8.2007 kl. 23:51
Æ, úps, já. Boðið á pallinum! Best að drífa í því áður en veturinn leggst að.
Ragnhildur Sverrisdóttir, 14.8.2007 kl. 23:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.