15.8.2007 | 11:10
Frændfólk
Ég mátti til með að stela þessari mynd af heimasíðu Viktors Páls, þriggja ára krúttfrænda. Greta mamma hans og bróðurdóttir mín tók myndina í Skorradal síðasta sunnudag. Yfirkrúttmolinn Viktor Páll er lengst til vinstri, en uppstillingardömurnar eru Elísabet, María Hrund bróðurdóttir mín (og hálfsystir Gretu) og Margrét.
María Hrund kom líka í heimsókn til okkar í gær. Þá höfðu systur boðið Evu Berglindi og Brynju systur hennar með heim af leikskólanum, María Hrund kom skömmu síðar og svo bættist Marta María nágranni við. Það var mikið fjör í heita pottinum og trampólíninu, eins og fólk getur nú rétt ímyndað sér. Elín Sjöfn stóra systir Mörtu kíkti aðeins við í lokin og öllu var slúttað með pylsupartýi.
Systur voru fljótar að sofna eftir þetta fjör.
Þær skriðu báðar upp í í nótt og sögðust hafa fengið martröð. Eitthvað var það nú málum blandið, enda skælbrosandi og sælar þegar þær laumuðu sér undir sængina. En stundum verður maður nú bara að fá að gera svoleiðis.
Á leiðinni á leikskólann í morgun spurði ég þær aðeins út í heimsóknir leikskólans á Droplaugarstaði, en þar áttu leikskólabörn og aldraðir heimilismenn margar góðar stundir síðasta vetur. Systur mundu þetta allt mjög vel. Þeim fannst skemmtilegast þegar bakaðar voru piparkökur og sláturgerðin var líka mjög eftirminnileg, "en það var ógeðslegt að setja hendina inn í vömb" sagði Elísabet og hryllti sig við tilhugsunina.
Ein kona hafði sagt þeim þjóðsögu, sem gerðist á jólanótt og þær endurtóku hana fyrir mig á leiðinni. Mjög krassandi, eins og allar þessar sögur um blessaða vinnufólkið sem missti vitið á jólanótt.
Hlutverk þeirra var að skemmta gamla fólkinu, sögðu þær, en viðurkenndu líka að gamla fólkið hefði nú skemmt þeim, t.d. með sögum af lífinu í gamla daga. "Eitt er verst! Við misstum af sumum dögum, til dæmis spiladegi," sagði Elísabet og Margrét harmaði líka þessa veikindadaga, sem höfðu af þeim heimsóknir á Droplaugarstaði.
Niðurstaða þeirra systra um heimsóknir til karla og kvenna á Droplaugarstöðum: "Þau kenna okkur og við kennum þeim."
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.