16.8.2007 | 08:50
Heilarugl
Systur voru dálítið spenntar að fara í leikskólann í morgun, því þær vita að frænkur þeirra, Matthildur og Marta Bryndís, koma að sækja þær seinni partinn.
Ég lýsti því fjálglega í morgun hvað þær myndu nú gera margt skemmtilegt með frænkum sínum -og í þokkabót bætist María Hrund líklega í hópinn.
-Hvernig er þetta með okkur systkinin, skírum við öll börnin okkar M-eitthvað? Bryndís á Gunnhildi með millinafnið Margrét, Kristján á Maríu, ég Margréti, Ásthildur Matthildi og Mörtu. Þetta fylgir okkur greinilega öllum, nema Möggu. En hún hefur nú líka sitt eigið M.-
Aftur að stelpukrúttum: Ég lýsti sem sagt fjálglega öllum skemmtilegheitunum framundan. En Elísabet stoppaði mig af: "Ekki tala svona mikið um þetta, þá verður heilinn minn alveg ruglaður. Þá hugsa ég svo mikið um þetta, að ég held kannski að sumt sé búið að gerast."
Ég samþykkti að hætta strax öllu tali, til að rugla hana ekki í ríminu. En hún hélt áfram: "Sko, ef ég ruglast, þá fer stundum allt á hvolf í höfðinu mínu og þá týni ég kannski hugmyndum. Stundum týni ég góðum hugmyndum og það er svo leiðinlegt."
Svei mér þá.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Nú segi ég eins og Jökull, barnabarnið mitt; hættu að tala kona!! Þú mátt ekki rugla barnið þannig að hún haldi að skemmtilegir hlutir séu búnir að gerast. Það er ekki fallegt.
Jenný Anna Baldursdóttir, 16.8.2007 kl. 10:19
Athugasemd Elísabetar um að ég sé of orðmörg kemur nú úr allra hörðustu átt! Ég hef stunduð grátbeðið hana að þagna, bara eitt einasta augnablik, en henni finnst nú alltaf betra að fylla upp í allar þagnir sem mögulega gætu myndast
Ragnhildur Sverrisdóttir, 16.8.2007 kl. 10:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.