Frekar tölvustelpur

Fyrir nokkrum mánuðum fengu systur fyrsta almennilega tölvuleikinn sinn. Þetta virtist dálítið skemmtilegt tæki, eins og lítið hús og eigandinn gat stjórnað stelpunni sem bjó í húsinu, valið á hana föt, hvað hún borðaði, hvað hún gerði sér til dundurs o.s.frv. Svo var hægt að tengja húsin saman og þá gat stelpan hennar Elísabetar heimsótt stelpuna hennar Margrétar o.s.frv.

Í fyrstu höfðu stelpurnar lítinn áhuga á þessu, enda var satt best að segja afar takmarkað hvað tölvustelpurnar gerðu. Ef t.d. var valið "play a game" þá settist tölvustelpan annað hvort við sjónvarpið eða fór í símann! Ekki góð fyrirmynd það...

En svo uppgötvuðu stelpurnar, að ef þær voru dálítið iðnar við að sinna tölvustelpunum þá bættust sífellt fleiri möguleikar við. Í stað þess að geta valið um 2 alklæðnaði gátu þær valið 8, í stað þess að senda stelpuna bara í símann eða setja hana við sjónvarpið gátu þær til dæmis látið hana leika við hundinn, köttinn, dansa, eða spila á rafmagnsgítar og þá gátu systur sjálfar samið lagið, með þeim hljómum sem í boði voru.

Systur fengu dálítið tölvuleikjaæði í nokkra daga. Stundum var Margrét iðnari og þá uppgötvaði Elísabet að tölvustelpan hennar Margrétar gat gert ýmislegt sem hennar stelpa gat ekki. Þá settist hún við og hamaðist, þar til hún færðist í "næsta borð" eða hvað þetta nú heitir á tölvuleikjamáli.

Það eina, sem var dálítið hvimleitt við þessa tölvuleikjastelpu, var að ef henni hafði ekki verið sinnt í sólarhring sagði hún ásakandi röddu: "Hey, I thought you were my friend!" Heimili hennar var þá orðið dálítið rykfallið, köngulóarvefir í hornum og hún pirruð og þurfti að dekstra hana til að leika. Líklega átti þetta að kenna börnum að maður á að sinna vinum sínum.

Svo fengu systur - og mæður þeirra- alveg nóg af þessum tölvuleikjastelpum. Það kom nefnilega í ljós, að allir skemmtilegu möguleikarnir, sem systur höfðu náð að kalla fram með mikilli ástundun, hurfu þegar freku tölvustelpunum var ekki sinnt um langa hríð. Systurnar lögðu leikinn frá sér í nokkra daga og voru þá búnar að missa helminginn af öllum möguleikum. Og þegar leikurinn hafði verið óhreyfður vikum saman hafði allt þurrkast út og eigandinn þurfti að byrja alveg frá grunni, með skemmtilegu "leikjunum", að horfa á sjónvarp eða tala í síma. Systrum var auðvitað nóg boðið.

En líklega lærðu þær að þurftafrekir vinir geta verið alveg gjörsamlega óþolandi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Brilliant tölvuleikur - veldur tölvuleikjaleiða á skömmum tíma. Peninganna virði.

Alveg yndislegar sögur sem þú segir af þessum skemmtilegu stelpum, takk fyrir það.

Adda Steina (IP-tala skráð) 16.8.2007 kl. 13:46

2 Smámynd: Ragnheiður

hahahaha ansi var þetta skemmtilegt. Ég les oft en hef ekki kvittað fyrr en nú

Ragnheiður , 16.8.2007 kl. 17:16

3 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Jújú, tölvuleikjaleiði getur svo sannarlega verið æskilegur, svo ekki sé ég eftir krónunum sem fóru í þessa leiðindastelpu. Hún gaf hvort sem er alveg kolklikkuð skilaboð, náði sér í nammi og settist við sjónvarpið þegar hún var að "leika", eða skrækti einhverja unglingafrasa í símann ("NO WAY!!")

Ragnhildur Sverrisdóttir, 18.8.2007 kl. 22:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband