Paradís

Systur vakna um helgar og spyrja strax: "Er barnatíminn byrjaður?" Þá skröltir önnur mamman framúr og kveikir á sjónvarpinu. Ríkissjónvarpið verður fyrir valinu, þar virðast oftar sakleysislegri myndir og allar talsettar. Stöð 2, sem við höfum að vísu alveg lagt í sumar, sýnir oftar einhverjar japanskar bardagateiknimyndir, sem höfða hreint ekkert til lítilla stelpna.

Þegar systur höfðu horft í um eina klukkustund kom Elísabet inn til mín, þar sem ég sat upp við dogg (þetta orðatiltæki sett inn hér til að gleðja bloggvininn hke) og kvartaði. Henni var svo kalt á tánum "og ég gleymi alltaf að fara í sokka."

Hún skreið upp í og stakk ísköldum tám í heita holu. Svo fór hún að rifja upp þegar hún gerði slíkt hið sama í Barmahlíð, þar sem við bjuggum áður. Þá vorum við með lítið sjónvarp í svefnherberginu. Oft sváfu mæður á sitt græna eyra á meðan barnatíminn glumdi. "Mér fannst svo gott að hlýja mér undir sænginni og horfa á sjónvarpið. Það var Paradís. Og stundum látti ég mig hósta, af því að þá var eins og einhver væri þarna líka."

Kompaný sofandi mæðra og glápandi systur var ekki nóg. Hún þurfti að "láta sig hósta" til að fá tilfinningu fyrir félagsskap við sjónvarpið.

Núna vappa þær systur um húsið, enn á náttkjólum. Það má á sunnudögum. Þær gistu hjá Matthildi og Mörtu frá fimmtudegi fram á laugardag, á meðan mömmur fóru í veiði í Grímsá í Borgarfirði. Það er nú meiri dásemdar veiðiáin! Veðrið var stórkostlegt, en það setti auðvitað strik í reikninginn. Það veiðist fjandakornið ekki neitt í glampandi sól og logni. En mikið var nú gott að sofna á milli þúfna í góða veðrinu, eða standa úti í miðri á og æfa flugköstin. Kata bjargaði svo heiðri okkar þegar hún náði einum 6 punda á síðasta degi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ertu ekkert farin að hugsa um að skrifa barnabækur útfrá þessum snillingum?

Grímsá hún er meiriháttar, en ég var alltaf bara í gamla veiðihúsinu með
minni fjölskyldu, á berjatíma vorum við aðallega í því að tína ber.
Víðidalsáin er líka í uppáhaldi þótt ég fari aldrei í þessar ár núorðið,
en við vorum alltaf þarna á sumrin. Afi minn leigði Víðidalsá í mörg ár ásamt
5. öðrum mönnum svo það voru hæg heimatökin.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 19.8.2007 kl. 14:53

2 identicon

Heyr heyr - hef oft hugsað eftir að lesa um systurnar " af hverju skrifar þessi kona ekki bækur fyrir börn"   

Birgitta (IP-tala skráð) 19.8.2007 kl. 15:03

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk fyrir mig.  Þú veist hvað mér finnst (krúúúútttkast)

Jenný Anna Baldursdóttir, 19.8.2007 kl. 18:00

4 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Já, það ætti að vera lítið mál að skrifa bók um þær ef ég vildi, bara klippa saman öll ósköpin sem ég hef látið frá mér fara á blogginu! Og alltaf bætist við...

Ég skil ekkert í bókaútgefendum að hafa ekki haft samband. Ætli þulusögur séu svona miklu líklegri til vinsælda? Jú, sennilega

Ragnhildur Sverrisdóttir, 20.8.2007 kl. 10:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband