19.8.2007 | 23:55
Medalíur
Systur tóku þátt í síðasta fótboltamóti sumarsins í dag, Orkumóti Fylkis í Árbænum. Valur mætti með tvö lið og stelpurnar spiluðu tvær umferðir, samtals fjóra leiki. Það voru bara þrjú lið í þeirra hópi, svo þær spiluðu tvisvar við Fylki og tvisvar við Breiðablik. Og svo fengu þær enn eina medalíuna, þá fjórðu í sumar! Reyndar eru þrjár þeirra fyrir fótbolta, en sú fjórða út Kvennahlaupinu. Elísabet lýsti því yfir að hún ætlaði sér að eignast jafn margar medalíur og mamma hennar. Hún má þá heldur betur halda á spöðunum, því Kata safnaði vænum skammti á löngum handboltaferli.
Um daginn voru teknar af mér myndir fyrir viðtal í Blaðinu og þá tók Kristinn mynd af mér í dyrunum á skrifstofunni. Á veggnum við hliðina er skjöldur með allflestum medalíum Kötu. Ég tók fram við Kristin að ég ætti nú ekkert af þessu, en hann tók myndina samt. Ég frétti svo síðar, að sú mynd hefði aldrei nokkurn tímann komið til greina í Blaðið, því þar innan búðar er maður, sem gat ekki hugsað sér að birta mynd af mér nálægt íþróttaverðlaunum! Hárrétt ákvörðun hjá honum, að sjálfsögðu, enda hefði slík mynd gefið vægast sagt villandi mynd af mér
Nú styttist mjög í skólagöngu systra. Elísabet er enn sallaróleg og Margrét farin aðeins að róast. Þetta verður ábyggilega ljúft.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.