Morgunmatur

Systur borðuðu morgunmat heima í dag, við verðum jú að æfa okkur aðeins áður en skólinn byrjar. Mömmur þurfa að kaupa nýja lýsisflösku, því nú er ekki lengur hægt að stóla á leikskólann.

Morgunmaturinn varð tilefni til mikilla umræðna um hvað væri nú best í magann áður en þær fara í skólann. Elísabetu fannst alveg kjörið að fá heitt súkkulaði með þeyttum rjóma. Ég aftók það með öllu, en sagði lítið mál að hita kakó og svo gætu þær fengið ristað brauð með. Nei, Elísabetu leist ekkert á ristaða brauðið, hún sagðist vera allt of lengi að borða það. Sem er hárrétt, enda er hún með sömu ósköpunum gerð og mamma hennar, að geta varla borðað fasta fæðu þegar hún er nývöknuð.

"Hvað heitir þetta sem er svona jógúrt og er rautt á litinn og með mynd af jarðarberjum?" spurði Elísabet. Þykkmjólk með jarðarberjum, svaraði ég og þá tilkynnti hún að hún vildi gjarnan fá svoleiðis. Með kakóinu.

Margrét var ekki í nokkrum vafa um hvað hún vildi helst. "Súrmjólk með púðursykri," sagði hún. "Og heitt kakó með."

Fullorðnu fólki þykir kannski ekkert sérstaklega girnilegt að moka upp í sig þykkmjólk eða súrmjólk og drekka heitt kakó með. En fullorðið fólk er heldur ekki að byrja í 1. bekk.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband