Koffín

Lífið er sko alls ekki flókið. Nú er hægt að greina persónuleika fólks með því að spyrja það örfárra og kjánalegra spurninga. Voila! 

Samkvæmt kaffiprófinu er ég latte, tvöfaldur espresso og flóuð mjólk:

"Þú ert skapstór og íhaldsamur einstaklingur sem lætur ekki bjóða sér hvað sem er. Undir vissum kringumstæðum leyfirðu þér að prófa nýjungar, en þó aðeins að vel athuguðu máli. "

Þetta er sosum allt í sóma. Ég hefði fengið nett áfall ef ég hefði verið koffínlaust soja sull.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Hvernig heldurðu að mér líði? Uppáhaldsdrykkurinn minn er latte í alvörunni ... og fyrir nokkrum árum kom ég út sem latte í þessu prófi. Þegar ég tók prófið um daginn kom ég út sem TE!!! Arggggg! Ég er í rusli, kommon... það drekkur enginn te nema kannski ruggustólakerlingar! Nú VEIT ég að þetta próf er bara rugl! Sjúkkitt að þú slappst við að verða koffínlaust sojasull, heheheheh!

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 20.8.2007 kl. 11:29

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég mun vera bankakaffi!  Simpil og auðvirðileg.  Hm... það reddar málinu að ég hef ekki drukkið kaffi í fjölda mörg ár.

Jenný Anna Baldursdóttir, 20.8.2007 kl. 11:51

3 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Latte er líka uppáhaldið mitt.

Vá, ef ég hefði vitað að möguleiki væri á að greinast sem te hefði ég aldrei, aldrei tekið þetta próf. Þarftu ekki áfallahjálp? ÓGN OG SKELFING!! Mér finnst te álíka áhugavert og gúrka: 99% vatn og restin vont bragð

Og ég er nú alveg standandi bit að skemmtilegur bloggari drekki virkilega ekki kaffi!!? Þú ert undantekningin sem sannar regluna, Jenný.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 20.8.2007 kl. 13:47

4 identicon

hvar kemst maður yfir þetta kaffipróf ? :D

þætti gaman vita hvað ég er þó að prófið sé örugglega eitthvað bull eins og margt annað í þessum heimi :)

Anna (IP-tala skráð) 20.8.2007 kl. 16:26

5 Smámynd: Bergþóra Jónsdóttir

Sæl mín kæra

Ég er latte líka og elska þann drykk!  Svo er auðvitað gaman að spá í hvað hinir og þessir vinir og vandamenn séu að órannsökuðu máli.  Ég held til dæmis að Karl Blöndal nái því ekki að verða neitt í þessari eðlu drykkjarsort.  Hann er kakó í gegn!

Bergþóra Jónsdóttir, 20.8.2007 kl. 18:00

6 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Hjá mér er það uppáhellingur, helst í taupoka. Sykur og mjólk. Molasopi eins og það kallast. Hvað skyldi það nú veita á.  'Eg sem hef verið að leita að sjálfum mér í öll þessi ár ætti kannski loksins að fá svar í gegnum þessa greiningu. Loksins!

Jón Steinar Ragnarsson, 20.8.2007 kl. 21:14

7 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Karl Blöndal er ávallt það sem flestar hefur kalóríurnar. Óþolandi fjári, sá granni sláni!

Jón Steinar, það er greinilegt að það er hægt að taka manninn úr Skutulsfirði, en ekki Skutulsfjörð úr manninum! Molasopinn segir ekkert annað en að þú ert kominn skemur frá upprunanum en þig grunar.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 21.8.2007 kl. 10:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband