Syfja

Elísabet kom upp í þegar vekjaraklukkan hringdi í morgun. Og auðvitað hélt hún því fram að hún hefði legið vakandi fram að því, enda sefur hún aldrei.

Þegar hún hafði kúrt dálitla stund heyrðum við bauk frammi. Margrét var greinilega komin á fætur. Við heyrðum hana trítla fram úr herberginu sínu og svo kom daufur dynkur. Hún birtist í dyrunum hjá okkur og sagði: "Ég er svo syfjuð að ég klessti á!"

Systur hennar fannst þetta óborganlega fyndið og spurði hana hvar hún hefði klesst á. Margrét gat ekki svarað því, sagðist vera svo syfjuð að hún vissi það ekki. Þetta fannst systur hennar enn fyndnara.

"Ég er svo syfjuð. Og svo er ég líka með stírur í aukanu og get varla opnað það," stundi Margrét og laumaðist undir sæng hjá mömmu sinni. (Hún getur nú alveg sagt "auganu", en stundum er nauðsynlegt að kveða fast að).


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

 "you know what - kast"

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.8.2007 kl. 13:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband