Æfing

Stelpurnar æfðu að ganga í skólann í dag. Eftir leikskóla fórum við í stígvél og regnúlpur og gengum frá Logalandi og "alla leið" í Fossvogsskóla. Þetta var  nú ósköp rólegt rölt og tók heilar tíu mínútur. Elísabet hafði allt á hornum sér, fannst greinilega óskaplega hallærislegt að æfa leið sem hún taldi sig nú aldeilis fullnuma í og ætlaði að sökkva niður úr götunni þegar ég krafðist þess að þær litu til beggja hliða og hlustuðu, áður en þær gengu yfir götuna. Hún er strax komin á "ég-fer-hrikalega-hjá-mér-þegar-mamma-mín-talar-of-hátt-um-sjálfsagða-hluti"-aldurinn. Ég sagði henni að það þýddi ekkert að láta svona, þetta væri einfaldlega í starfslýsingu minni, ef ég gerði þetta ekki þá væri ég ekki mamma. "Jæja þá," sagði hún og kvartaði ekki meira.

Heimleiðin tók miklu, miklu lengri tíma, því þá lét ég eftir Margréti að stoppa í hvert sinn sem hún sá eitthvað ótrúlega áhugavert. Fyrst var það stór skrúfa, sem var svo stór að "hundraðmilljón maurar gætu ekki loftað henni", því næst var það myndarleg grein, sem nauðsynlegt var að lyfta hátt yfir höfuð um leið og sungið var Hæ-hó-jibbý-jei og að það væri kominn Sautjándi júní, þá var röðin komin að ótrúlega áhugaverðu, rauðleitu laufi, því var snarlega sleppt þegar gula laufið  birtist, sem svo aftur gleymdist þegar uppgötvaðist hvað það getur verið stórkostlegt að klessa reyniber á gangstéttinni og loks var það þessi gegnsósa pappírssnepill, sem beinlínis varð að reyna að lesa eitthvað útúr. Þá eru ótaldir allir pollarnir, þrjúhundruð og eitthvað, sem þurfti að stíga í.

Ég varð að láta þetta eftir henni. Ég man ósköp vel hvað það tók mig langan tíma að fara í skólann og heim aftur, af því að ég þurfti t.d. á hverjum einasta degi að fylgjast með hvernig bananahýðið, sem ég fann bakvið stein í upphafi skólagöngunnar varð smám saman brúnna og svo kolsvart.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Björg Þorsteinsdóttir

Frábært að æfa leiðina! Þetta viljum við akkúrat í umferðaröryggisbransanum. Fenguð þið ekki bækling frá okkur? Við búum nánast inn á lóð Vogaskóla og ef dæturnar kjósa að fara í MS þá þurfa þær ekki að fara yfir götu fyrr en að loknu stúdentsprófi Þegar sú yngri fór að fara með strætó í íþróttir og tónlistarskóla þá æfðum við hana þannig að hún gekk svona 100 metrum á undan okkur og við þóttumst ekkert þekkjast - hvorki í strætóskýlinu né í vagninum. Hún þurfti að borga sjálf og hringja en vissi af okkur ef eitthvað kæmi uppá.

Varðandi það að fara hjá sér varðandi mömmu þá er þetta bara rétt byrjunin! Nú hefur þetta færst inn í hús hjá okkur og ég má hvorki tjútta né syngja í eldhúsinu án þess að önnurhvor ranghvolfi augunum. Ég læt það svosem ekkert á mig fá og minni þær á að það sé skemmtilegt að eiga mömmu með rennandi blóð.........

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 22.8.2007 kl. 07:23

2 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Hehe, alveg vissi ég að þetta myndi höfða sérstaklega til eins bloggvinar umfram aðra

Ég hef sjálf margsagt að þær systur verði ekki hér á landi um verslunarmannahelgi fyrr en þær verði komnar vel fram yfir tvítugt. En ekki hafði mér nú hugkvæmst að velja okkur húsnæði sem miðaðist við að þær þyrftu ekki að fara yfir götu fyrr en eftir stúdentspróf! Mér finnst að þú eigir að fá stöðuhækkun og launahækkun fyrir fordæmið. Og jú, við fengum bæklinginn,takk.

Næst þegar þær systur þurfa að æfa leið ætla ég að fara að þínu fordæmi og ganga 100 m fyrir aftan þær. Nei, annars, 100 m fyrir aftan Elísabetu. Margrét myndi líklega leiða mig, hún er ekki jafn viðkvæm.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 22.8.2007 kl. 09:12

3 identicon

Stórskemmtileg lýsing eins og allar þessar sögur. Og talandi um tvítugt - við sýndum 15 ára syninum hvar strætó fyrir menntaskólann stoppaði og hvaða leið hann ætti að ganga. Umferðarreglurnar þó taldar í höfn.

En sagan af heimleiðinni rifjaði upp margar gönguferðir með sonunum og alla þá ótrúlega spennandi hluti sem sjá má á stuttri leið, ef maður bara hefur augun hjá sér. Í tilfelli þess yngri bættust við öll hlið sem hægt var að fara gegnum, undir og yfir, girðingar til að ganga á, tré til að klifra í og hentug prik til að safna.

Það verður spennandi að heyra af skólagöngunni hjá dömunum.

Adda Steina (IP-tala skráð) 22.8.2007 kl. 12:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband