21.8.2007 | 23:29
Óskastund
Við kvöldmatarborðið sögðu Kata og Elísabet eitthvert orð samtímis og Elísabet rétti strax fram litla fingur, svo þær gætu krækt saman fingrum og óskað sér.
Svo vildi hún fá að vita, hvers Kata hefði óskað sér. Þær systur halda því báðar fram, að óskir rætist aðeins ef maður segir frá þeim, alls ekki annars. Kata samþykkti að láta óskina sína uppi og sagðist hafa óskað þess að skólaganga Elísabetar yrði mjög skemmtileg.
Glottið á Elísabetu sýndi, að hún hefur fyrir löngu gert sér grein fyrir að mömmur óska oftast einhvers sem kemur dætrunum vel. Þegar Kata bað hana að segja sér hvers hún hefði óskað sér brosti hún út að eyrum og svaraði: "Ég óskaði þess að óskin þín rættist!"
Fínt að baktryggja óskirnar svona
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég er alveg inni á þessu sama og stelpurnar, með að óskirnar rætis bara ef maður segir frá þeim. Brilljant að baktryggja, rétt er það.
Jenný Anna Baldursdóttir, 22.8.2007 kl. 01:31
Þær eru sannfærðar um þetta og ryðja út úr sér alls konar dæmum um óskir, sem rættust eingöngu af því að sagt var frá þeim
Svo eru báðar svo forvitnar að hin leiðin væri alveg óþolandi.
Ragnhildur Sverrisdóttir, 22.8.2007 kl. 06:46
En hvad tad er gott ad geta lesid eh skemmtilegra i kaffipasunni en Politken (um hvad Danir standa sig illa i ad greina,medhøndla og lækna krabbamein og ad sjukrahusin vanti peninga og hjukrunarfrædinga.) Tvi var svo tilvalid ad lesa sidustu færslur tinar um dæturnar. Og hafdi gaman og gott af.
Greinilega mjøg klarar dætur- se bara eftir tvi ad hafa ekki fundid tessa lausn fyrr, med oskirnar. Tar sem eg er mjøg forvitin !
Hildur Bjørg
Hildur Bjørg Ingolfsdottir (IP-tala skráð) 22.8.2007 kl. 08:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.