Fyrirmyndir

Það er gott að hugsa þegar tennurnar eru burstaðar á morgnana. Nú, eða hárið. Elísabet var alla vega hugsi á baðherberginu í morgun. Svo elti hún mig fram og sagði upp úr eins manns hljóði: "Það er gott að þið eruð mömmur okkar."

Fátt er nú betra fyrir sálartetrið en svona yfirlýsingar í morgunsárið.

Svo hélt hún áfram: "Þið kunnið svo margar skemmtilegar sögur. Eins og þegar Knútur frændi klessti á mömmu á sleðanum. Og þegar mamma plataði hann til að gefa sér súkkulaðið sitt. Eða þegar þú fórst að ná í eggin fyrir ömmu Deddu og braust þau öll. Og fékkst gat á hausinn þegar stóllinn datt á þig."

Jamm, alltaf gaman að heyra hrakfallasögur af mæðrunum.

Við erum óskaplega góðar fyrirmyndir.

Dæs...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þið mömmur eruð greinilega endalaus uppspretta skemmtilegra sagna.  Hrakfallabálkar?  Neh aldrei myndi ég halda því fram.

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.8.2007 kl. 09:54

2 identicon

Skemmtilegustu sögurnar sem ég segi barnabörnum mínum eru einmitt sögur af foreldrum þeirra. Og því skemmtilegra finnst þeim, ef þær eru svolítið krassandi.

Kveðja í Logalandið

Þóra Guðnadóttir (IP-tala skráð) 22.8.2007 kl. 11:21

3 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Já, ég er nú eiginlega farin að ýkja hrakfarir mínar verulega, þær vekja svo mikla lukku

Ragnhildur Sverrisdóttir, 22.8.2007 kl. 15:31

4 identicon

og ekki bara fyrir blessuð börnin, þið eruð frábærar fyrirmyndir fyrir okkur hin, eins og t.d. þegar Kata plataði 'Asdísi Höllu svo illilega að hún rambaði á barmi taugaáfalls (ég var bara aðstoðarkona) og þegar þú......  hmmm. Hvernig er það annars með forseta-framboðið, er ekki kominn tími til að koma hlutunum í gang. The First Twins þurfa að komast á Bessastaði sem fyrst!
 

Urður (IP-tala skráð) 23.8.2007 kl. 11:08

5 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Uss, eins gott að sagan af gabbinu mikla haldist í þröngum hópi! Það var nú eiginlega of nasty  GRÍÐARLEGA vel heppnað, sem sagt. "Aðstoðarmennska" þín var líka til fyrirmyndar, alla vega er Kata farin að aðstoðarmennskast full time núna.

Forsetaframboðið. Ja, humm...Kannski þær systur skelli sér í það síðar.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 23.8.2007 kl. 13:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband