Systur sulta

Systur gerðu rifsberjahlaup á þriðjudag, eftir heimsókn til afa og ömmu í Gilsó. Þar fylltu þær skál af rifsberjum og nokkur villt jarðarber fengu að fljóta með. Svo komu þær heim, vigtuðu berin, mældu sykur saman við og afraksturinn var 8 krukkur. Við Kata eigum eftir að hreinsa runnann við gott tækifæri og sulta fyrir veturinn, en á þessu heimili kemur engin önnur sulta til greina svo birgðir verða að vera nægar. Við getum t.d. alls ekki borðað okkar vikulegu klatta um helgar án þess að hafa rifsberjasultuna með.

Linda á leikskólanum fékk þær systur til að lýsa sultugerðinni og sendi mér óborganlegt myndband. Þar eru þær systur í essinu sínu, leiðrétta hvor aðra alveg endalaust, en segja samt báðar nákvæmlega sömu söguna LoL

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Þær eru algjörir snillingar þessar stelpur! Gaman að sjá þær í hreyfimynd!

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 22.8.2007 kl. 16:23

2 identicon

Snilldar færslur! Þær langskemmtilegustu á Netinu!

Steini Briem (IP-tala skráð) 22.8.2007 kl. 18:49

3 identicon

Þegar ég spurði mínar tvíburastelpur á morgnana,hvað dreymdi ykkur í nótt?Þá svaraði önnur og hin kláraði að segja frá,svo ég spurði hvernig getur þú vitað hvað hina dreymdi þær vissu ekki hvað ég átti við þær hreinlega skildu mig ekki.það er mjög gaman að eiga tvíbura það er allt öðruvísi en að eiga eitt í einu sambandið á milli tvíbura er eitthvað sem maður skilur ekki.Eins og þegar þær voru að kaupa eins jólagjafir í sitt hvoru landinu.

Margret (IP-tala skráð) 22.8.2007 kl. 20:54

4 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Haha, þetta er algjör snilld! Einn draumur á systur

Eru þær eineggja? Okkar stelpur eru það ekki og eru að mörgu leyti mjög ólíkar.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 22.8.2007 kl. 21:44

5 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Þetta er geðveikt sætt - oh nú verð ég að fara senda hreyfimyndir af mínum barnabörnum - kveðja á þessa snillinga!

Edda Agnarsdóttir, 22.8.2007 kl. 21:56

6 identicon

Mikið eru þær yndislegar þessar tvær. Ég spilaði vídeóið þrisvar mér til skemmtunar.

Gunnþóra Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 22.8.2007 kl. 21:58

7 identicon

Ja, thaer eru algjorlega bara yndislegar...en samt finnst mer eins og thessari til vinstri se miklu meira a hjarta en henni er leyft????

Hjartans bestu kvedjur til ykkar.

Edda (IP-tala skráð) 23.8.2007 kl. 00:04

8 Smámynd: mongoqueen

Þær eru æðislegar  Sé að þær eru að fara í sama grunnskóla og ég var í, það rifjast upp fullt af  góðum minningum úr dalnum 

Gangi þeim vel í skólanum.

mongoqueen, 23.8.2007 kl. 10:30

9 Smámynd: Ása Hildur Guðjónsdóttir

Dúllí dúlli algerir snillingar

Ása Hildur Guðjónsdóttir, 23.8.2007 kl. 11:21

10 identicon

Það er nú spurningin hvort þær eru eineggja,fylgjurnar voru tvær en mér er sagt að það geti verið þó um eineggja tvíbura sé að ræða.Það þarf dna til að ganga úr skugga um það.Þær veiktust alltaf á sama tíma,ég þurfti ekki að mæla nema aðra þá vissi ég hvað hitinn var í báðum.Þegar þær fengu td mislinga þá byrjuðu útbrotin á sömu mínútu.Einn svona léttan að endingu,önnur gifti sig á undan og maðurinn hennar var alltaf kynntur svona,þetta er maðurinn hennar A og B þannig að hann varð alltaf að leiðrétta það að það væri bara önnur sem væri konan hans

Margret (IP-tala skráð) 23.8.2007 kl. 13:26

11 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Ja, þetta með að Margréti liggi meira á hjarta en hún kemur á framfæri: Elísabet er yfirleitt mjög fljót til að svara, Margrét hugsar sig lengur um. En hún kemur nú öllu sínu mjög vel og nákvæmlega til skila fyrir rest

Það verður mjög áhugavert ef við fáum tengdason, sem verður kynntur sem "maður Elísabetar og Margrétar!" Það þarf sterk bein til að þola slíka kynningu  Annars er Margrét löngu, löngu búin að ákveðna hverjum hún ætlar að giftast. Elísabet ætlar að bíða aðeins lengur með þá ákvörðun.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 23.8.2007 kl. 13:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband