23.8.2007 | 14:13
Í skólanum
Systur hittu Erlu kennara í fyrsta sinn í morgun. Þær voru ægilega spenntar og snöggar að koma sér í skólafötin. Svo fóru þær í sparikápurnar, sem helgaðist nú aðallega af því að úlpurnar og flíspeysurnar voru í leikskólanum. En auðvitað er vel við hæfi að klæða sig upp á svona degi.
Í tilefni dagsins fórum við í bakaríið í Austurveri, þar sem systur fengu heitt kakó og snúða í morgunmat. Svo fórum við í Fossvogsskóla. Við þurftum að bíða dálitla stund, en notuðum tækifærið og rannsökuðum stelpuklósettið. Þær systur ætla sko ekki að lenda í því að finna það ekki þegar mest á ríður.
Þegar Erla bauð okkur inn í skólastofuna urðu systur dálítið undirleitar og feimnar, en heilsuðu samt kurteislega. Svo settust þær hlið við hlið á móti Erlu, en við Kata við hliðina á þeim.
Erla spurði þær að hinu og þessu og þær svöruðu öllu greiðlega. Þetta var samt dálítið stressandi sýndist mér. Allt í einu sá ég að Elísabet laumaði hægri hendi í vinstri hönd systur sinnar. Skömmu seinna sleppti hún takinu og þá var ljóst að hún var farin að slaka á.
Margrét hefur verið uppfull af spurningum síðustu vikurnar um allt sem snertir skólann. Hún sá sér leik á borði þegar hún loks hitti kennarann og spurði um allt milli himins og jarðar. Hvað væri í litla, lokaða herberginu í horninu, af hverju væru kerti á borðinu og af hverju væri þá lampi líka. Og fékk nákvæmar lýsingar á því, að í frímínútum væri alltaf einhver kennari eða annar starfsmaður á gangi um skólalóðina og ef eitthvað kæmi upp þyrfti bara að snúa sér til hans. Henni létti mjög, enda hefur þetta hvílt einna þyngst á henni. Loks sýndi hún kennaranum svo stóra skarðið sitt og þar með hafði hún fengið allar nauðsynlegar upplýsingar og kennarinn verið upplýstur um allt sem mestu máli skipti.
Þegar við komum út úr skólastofunni beið Marta María vinkona eftir að fara inn til kennarans, svo þar urðu fagnaðarfundir. Og í næstu stofu fréttum við af Bjarka Mögguvini hjá sínum kennara. Þær systur eiga eftir að vera eins og fiskar í vatni í þessum skóla.
Systurnar fóru svo í síðasta skipti í besta leikskóla í heimi, með birgðir af íspinnum og frostpinnum með sér. Og það verður pizzu-veisla síðasta daginn.
Á morgun byrjar alvara lífsins. Klukkan 8:10.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hvað er yndislegra í heimi hér en elsku börnin okkar
vala rós (IP-tala skráð) 24.8.2007 kl. 09:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.