Skóli

Jæja, fyrsti skóladagurinn hafinn. Systur eru í Fossvogsskóla og við mömmurnar eigum bara að gera fullorðinsstöff í allan dag og láta eins og ekkert sé!

Dæs...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Fyrsti skóladagurinn er foreldrum jafn erfiður og börnunum. Blandin kvíða og tilhlökkun. Litla barnið er allt í einu orðið "mjög stórt".

Þóra Guðnadóttir (IP-tala skráð) 24.8.2007 kl. 09:09

2 identicon

Ég var ansi dugleg í göngutúrum  þegar mín stelpa byrjaði í skólanum fyrir ansi mörgum árum hún er 19 ára núna. Það er svo mikið öryggi í leikskólanum allt afgirt en svo tekur alvaran við, mér fannst ég þurfa að fylgjast með en auðvitað án þess að hún yrði mín var. Allt fór þetta vel og er daman í góðum málum og stundar nám í Kvennó af kappi í dag

vala rós (IP-tala skráð) 24.8.2007 kl. 09:45

3 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Hehe, já, einu tárin sem sáust í morgun voru á hvörmum foreldra

Fossvogsskóli er á þannig stað að ég get hæglega fylgst vel með honum, skriðið eftir skurðum í dalnum og skoðað skólalóðina úr hæfilegri fjarlægð. Ég ætla þó að reyna að stilla mig...

Ragnhildur Sverrisdóttir, 24.8.2007 kl. 11:25

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ragnhildur, það vantar alltaf gangaverði í skólana. Bara hugmynd! (glottkall)

Jenný Anna Baldursdóttir, 24.8.2007 kl. 12:09

5 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Systurnar hafa margoft stungið upp á að við Kata fengjum okkur vinnu í skóla. Þeim fannst alveg kjörið að ég tæki að mér matseld á leikskólanum og þegar Kata var á milli starfa bentu þær henni ítrekað á að hún gæti örugglega fengið vinnu þar. Áttuðu sig svo á að bráðum færu þær í grunnskóla og þá byrjaði sami áróðurinn um hvað þar væri nú gott að starfa

Ragnhildur Sverrisdóttir, 24.8.2007 kl. 12:41

6 identicon

Hæ fjölskylda

Litla barnið mitt er líka að byrja í skóla svo ég þekki tilfinninguna:) ég elti elstu dóttur mína í leikskólann og svo í grunnskólann af því að ég er svo heppinn að hafa menntun sem nýtist þar en núna var hún að byrja í menntaskóla svo ég get ekki elt hana lengur ég held samt að henni sé alveg sama:):)

Gangi ykkur vel í skólanum Margrét og Elísabet og myndbandið af ykkur að tala um sultugerð er frábær þið eruð æði:)

Mbk.Sirrý

sigurósk Kristjánsdóttir (IP-tala skráð) 24.8.2007 kl. 12:51

7 identicon

það er gott að vita að maður á þjáningarbræður og systur einhvers staðar.     það hefur ekki gengið allt of vel með fullorðinsstöffið í morgun, en það gengur vonandi betur eftir helgina.

kv mamma sem fylgdi strákunum sínum í skólann í dag

Birgitta Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 24.8.2007 kl. 13:02

8 Smámynd: mongoqueen

Oh já ég man hvernig ég var í fyrra þegar strákurinn minn var að byrja í 1 bekk   Mér fannst hann vera alltof lítill til þess að vera þarna, var alveg á nálum fyrstu dagana!!!

En núna þegar hann fór í 2 bekk þá var þetta örlítið bærilegra, ótrúlegt hvað þau þroskast mikið í 1 bekk. Ekki það að ég átti erfitt með að slíta mig frá skólastofunni í gær

mongoqueen, 24.8.2007 kl. 17:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband