25.8.2007 | 12:00
Allir kossar í heimi
Úff, hvað það er hægt að vera örmagna eftir fyrsta skóladaginn! Systur fleygðu sér upp í sófa þegar þær komu heim, spörkuðu sér úr buxunum og fóru í joggingbuxur, Elísabet tók teygjuna úr hárinu og svo stundu þær og kvörtuðu yfir erfiðum degi. Börnin læra víst það sem fyrir þeim er haft
Þær þóttust ætla að vaka dálítið fram eftir, enda föstudagur, en raunin var sú að þær voru báðar skriðnar upp í rúm klukkan átta. Það hjálpaði að vísu til, að þær fengu að sofna í stóra rúminu í tilefni dagsins. Og að þær höfðu platað mömmu til að lesa heilt Andrésblað.
Það voru engin þreytumerki á þeim systrum rétt fyrir kl. 8 í morgun! Margrét settist við barnatímann, eins og venjulega og Elísabet líka. En Elísabet kom auðvitað upp í fljótlega. Allt var þetta eftir bókinni, hún var orðin köld á tánum og þurfti að fá "heitu" eins og það heitir á þeim bænum.
Mér fannst hún ganga full hart að mér þegar hún var að troða tánum inn á mig, í leit að heitu. Og ég kvartaði og sagði eitthvað á þá leið að hún stappaði svo á mér að ég væri eins og vínber í tunnu. O.K., ég veit að þetta er hörmuleg samlíking að bera á borð fyrir 6 ára stelpu, en klukkan var 8 á laugardagsmorgni og ég hugsaði ekki alveg skýrt. Það gerði hún hins vegar og kom með betri samlíkingu: "Nei, ég stappa á þér eins og fiski og kartöflum."
Ég prísa mig sæla að smjörið hafi legið óhreyft í ísskápnum.
Núna eru þær systur með venjulegan helgarslæping, búnar að finna skrautleg pils og vefja sig í alls konar hálsfestar. Svo skiptast þær á að sýna dansatriði. Margrét gladdi systur sína sérstaklega með því að velja Katie Melua sem undirspil, enda veit hún að Elísabet verður alltaf einstaklega ljúf til augnanna og mild í skapi þegar sú kona byrjar að syngja. En þegar Margrét valdi þann disk sem hún vildi sjálf helst hlusta á varð Uppreisnin á barnaheimilinu fyrir valinu. Elísabet benti henni á að það væri ekki hægt að dansa við þann ágæta disk, en þá svaraði Margrét stutt og laggott: "Ég er í pásu." Hún lét 1. kafla Uppreisnarinnar duga og núna hljómar Katie aftur.
Rétt áðan kom Margrét hlaupandi til mín og spurði: "Má ég fá koss?" Æ, ósköp fannst mér þetta nú sætt, svo ég svaraði að auðvitað mætti hún fá alla kossa í heimi og breididi út faðminn, öll meyr og væmin. En hún þeyttist þá í burtu aftur og hrópaði "Elísabet, við megum fá alla kossana!" Þær systur höfðu þá séð skál með Hershey's súkkulaðikossum uppi í stofu, sem ég var búin að steingleyma að væri þar. En af því að það er nú nammidagur verð ég alla vega að gefa þeim nokkra kossa, annað væri svindl.
Í dag er Valsdagurinn, þegar Valsarar vígja ný mannvirki á Hlíðarenda. Kata skrapp í vinnuna en þegar hún kemur heim ætlar hún að fara með stelpurnar þangað. Gamli KR-ingurinn fær að slaka á heima Og láta sig hlakka til matarboðs hjá góðum vinum í kvöld.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það er svo skemmtilegt að lesa um þessar stelpur,
síðan eiga eftir að koma endalaust frá þeim gullmolar, eftir því sem þær kynnast
betur öllum brellunum í skólalífinu, það verður gaman að fylgjast með því.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 25.8.2007 kl. 12:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.