25.8.2007 | 12:57
Prjónar
"Ég hlakka svo til þegar ég verð stór. Þá ætla ég að sitja og prjóna og þá verð ég búin að eignast barn og ég ætla líka að rugga barninu mínu."
Þessi yfirlýsing Margrétar kom áðan, þegar ég kíkti inn í herbergið þeirra, undrandi á þeirri þögn og kyrrð sem þar ríkti. Þær systur sátu þá enn með prjóna, sem ég lét þær fá fyrir hálftíma og "prjónuðu". Báðar með bleikt band og strituðu við lykkjurnar sem ég hafði fitjað upp á (eftir besta minni, en mikið svakalega eru þessi fræði fjarri mér!)
Kata tekur miklar prjónarispur af og til. Þær systur hafa fengið að stjórna mörgu af því sem hún hefur prjónað. Sem er skýringin á því að hosurnar sem þær notuðu í fyrra voru bleikar, appelsínugular og fjólbláar, með marglitum pallíéttum saumuðum í
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Góðar
Ég sé þær alveg fyrir mér standa yfir henni: Nei bleika rönd þarna, já og smá pallíettur hér, nei rektu upp þennan græna, passar ekki, frekar appelsínugult .... eða ... gult ... Hvað er hún lengi með hvern sokk?? 
Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 25.8.2007 kl. 13:44
Fitja upp? Hm.. ansi er orðið langt síðan að ég uppgötvaði "ekkiprjónagetu" mína.
Jenný Anna Baldursdóttir, 25.8.2007 kl. 13:58
Þetta var reyndar ekki alveg svona slæmt, því þær systur völdu litina fyrirfram í samráði við mömmu sína. Elísabet ákvað t.d. að hennar hosur yrðu bleikar með fjólubláum hæl og tá og Margrét valdi appelsínugular hosur með bleikum hæl og tá. Þegar hosurnar voru tilbúnar byrjaði hins vegar fjörið, því þá fengu þær að gramsa í pallíettum og ráða hvar þeim var tyllt á. Kata dró mörkin við iljarnar, allt annað var í lagi
Ragnhildur Sverrisdóttir, 25.8.2007 kl. 14:21
það er auðveldara að hekla...það er að segja ef þú hefur einhvern hannyrðametnað...
Að rýja er líka tiltölulega einfalt...
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, 27.8.2007 kl. 02:59
Metnaður minn á þessu sviði er álíka mikill og löngun mín til að verða í fremstu röð meðal ballettdansara.
Þegar ég var neydd til að prjóna og hekla í skólanum var helsti vandinn sá, að allar lykkjur voru svo hrikalega fastar. Ég þurfti á öllum mínum styrk að halda til að þvinga þær fram af prjónunum, eða ná að krækja í gegnum þær með heklunálinni. Afskaplega þreytandi. Snillingarnir sem fundu upp rýjamotturnar höfðu hins vegar vit á að fræsa einhverja rauf ofan í fjölina sem notuð var, svo það var alveg sama hversu hrikalega ég herti á öllu, það var alltaf hægt að lauma skærum eftir þessari rauf. Ég var ánægð með það. Já, að rýja, það yrði örugglega fyrir valinu, ef mér dytti í hug að taka upp hannyrðir.
Ragnhildur Sverrisdóttir, 27.8.2007 kl. 09:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.