Sigruð

Læknirinn, Öskubuska, málarinn og Hawaii-stúlkan fóru út á trampólín. Skömmu síðar birtist Brynja frænka Töru og Marta María kom í kjölfarið.

Það var nú ekki fjörlaust fyrir. Núna er allt að verða vitlaust LoL

Elísabet tók að sér að gefa öllu genginu kex. "Það verður að hafa hressingu úti á palli þegar maður er með gesti," sagði hún afskaplega ákveðin, eins og hún ætti von á að ég myndi mótmæla.

Ég er löngu búin að játa mig sigraða.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Heilsuhælið í Hveragerði!  Sounds like a plan?  Hehe

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.8.2007 kl. 17:16

2 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Haha, jú stundum hvarflar að manni að heilsuhæli væri freitandi. En núna er allir farnir til síns heima, systur borðuðu vel af lambasteikinni og eru sætastar og syfjaðastar á náttkjólunum sínum. Ég held svei mér þá að andlegt ástand mitt sé með skásta móti, þótt líkaminn sé uppgefinn

Ragnhildur Sverrisdóttir, 26.8.2007 kl. 19:43

3 identicon

Var að "lesa upp" nokkrar færslur og var næstum búin að vekja barnið, svo hátt hló ég yfir færslunni um kossana. Skelfilega áttu auðvelt með að vera fyndin.

Takk fyrir hlátrasköll vikunnar

Katrín Brynja

Katrín (IP-tala skráð) 28.8.2007 kl. 00:34

4 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Þetta er mesti misskilningur. Ég er alls ekkert fyndin. Stelpurnar mínar eru fyndnar og ég skrái bara samviskusamlega niður það sem þær segja

Ragnhildur Sverrisdóttir, 28.8.2007 kl. 09:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband