Barnið

Pétur Sigurgeirsson skrifar örgrein í Moggann í morgun. Fyrirsögnin er Barnið og svona er textinn:

"Börnin eru veikasti hlekkur en um leið sá þýðingarmesti í keðju kynslóðanna. Þau þurfa umfram allt að eiga venjulega, góða uppaldendur til að lífskeðjan haldi:

Fjölskyldugildum getum ei raskað,

gefa þau mannlífi skaparans.

Aldrei á glæ þeim gildum sé kastað,

þau gilda um framtíð í sköpun hans."

Mér finnst nú reyndar líklegt að Moggi hafi klúðrað eitthvað uppsetningunni á kveðskapnum frá Pétri, enda er önnur línan óskiljanleg.

Þegar þessi kveðskapur birtist í Lesbók Mogga í október í fyrra leit hann svona út:

Fjölskyldugildum getum ei raskað

sem gefa oss mannlífið Skaparans.

Aldrei á glæ þeim gildum sé kastað

þau gilda um framtíð í sköpun Hans.

Að baki þessari örgrein er auðvitað afskaplega fögur hugsjón Péturs. Það er ég alveg handviss um að hann hefur haft mig og mína fjölskyldu í huga, þegar hann skrifaði um "venjulega, góða uppalendur."

Notalegt að fá svona kveðju í morgunsárið. Það er augljóst, miðað við kristilegan kærleikann sem streymir frá hverju orði, að Pétur þessi Sigurgeirsson er sá hinn sami og eitt sinn var biskup á Íslandi. Það eru svo fagrir þjóðkirkjustraumar frá þessu Halo Og líka eitthvað svo fallegt að birta þetta árlega, til að hnykkja á mikilvægi þess að viðhalda fjölskyldugildum. Sem venjulegir, góðir uppalendur fara létt með Wink

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Halló! Það var tilviljun að ég kom auga á þennan illa orta kveðskap. Mér fannst gott hjá Mogganum að bola þessum áróðri bara einhvern veginn svona hálfvegis út af síðunni. Staðsetningin gerir það að verkum að það er auðvelt að rífa þetta horn bara af og nota næst þegar maður þarf að henda tyggjói. Og gerðu það fyrir mig að reyna aldrei nokkurn tímann að vera ,,venjuleg". Þá fyrst yllirðu mér vonbrigðum.

Gerður Kristný (IP-tala skráð) 28.8.2007 kl. 11:09

2 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Ég nota aldrei tyggjó, svo þess vegna hefur þetta líklega staðið í mér, ég sá bara alls engin praktísk not af þessu horni Moggans.

Ég verð áreiðanlega ekkert venjuleg úr þessu (47 ára Í DAG, thankyouverymuch og lítil von um bata)

Ég bendi á að þú ert heldur ekkert venjuleg. Sem hefur hins vegar ekkert að gera með hversu góður uppalandi þú ert. Úff, ætli við þurfum í alvöru að hafa áhyggjur af að "lífskeðjan bresti"

Ragnhildur Sverrisdóttir, 28.8.2007 kl. 11:33

3 identicon

Ragnhildur mín! Innilega til hamingju með afmælisdaginn, þetta er enginn aldur og blessuð farðu nú ekki að verða venjuleg úr þessu. Ég er nánast viss um að það telst til dæmis ekkert venjulegt í dag að ÖLL fjölskyldan setjist saman að kvöldverðarborðinu. Ég hef einmitt mikið lagt mig fram um að halda þessu heima hjá mér, þó ekki sé annað. Stundum erfitt að halda öllum barnahópnum rólegum í sætunum. Slekk meira að segja á sjónvarpinu á meðan borðað er, heldurðu að það sé yfirgangur? Annars er bloggið þitt búið að vera mér endalaus skemmtun í sumar - ég gæti alveg dáið úr hlátri stundum af orðatiltækjum stelpnanna. Hittingur í nánd - allt of langt um liðið frá því síðast. Knús, Olla.

Ólöf Marín Úlfarsdóttir (IP-tala skráð) 28.8.2007 kl. 13:01

4 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Halló, halló frú Ólöf! Mikið er gaman að sjá þig hér aftur. Vertu duglegri að kommenta hjá mér, það er svo gaman!

Já, hittingur þarf að fara að bresta á. Ég er á kafi í vinnu næstu vikurnar, en upp úr miðjum september verður allt sallarólegt. Það stendur nú eiginlega upp á mig að fara að fá ykkur í heimsókn, svona áður en fer að SNJÓA á fína pallinn ;)

Ragnhildur Sverrisdóttir, 28.8.2007 kl. 14:02

5 identicon

Verd bara ad "kommenta" smá. Hvad eru venjulegir, gódir uppalendur?  Sé ekki betur en ad tid séud tad.

HBI

Hildur Bjørg Ingolfsdottir (IP-tala skráð) 29.8.2007 kl. 08:41

6 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Ég er reyndar alveg á því að við séum "venjulegir" og góðir uppalendur, takk  

En það er alveg ljóst að Pétur myndi seint fella okkur undir skilgreiningu sína á "venjulegum" foreldrum.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 30.8.2007 kl. 10:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband