Afmæli

Systur eru búnar að vera ákaflega leyndardómsfullar undanfarna daga. Þær fóru með mömmu sinni í bæjarferð á laugardag og sögðust vera að fara í "pæjubúð". Ég mætti alveg vera heima, enda þætti mér ekkert gaman að fara í svoleiðis búðir. Sjálfar dæstu þær og töluðu hátt og mikið um hvað það væri nú leiðinlegt að fara í pæjubúðir, en þær yrðu víst að gera þetta fyrir mömmu sína.

Kata skrapp til útlanda á sunnudag, en systur tóku af mér símann þegar hún hringdi og pískruðu og hvísluðu.

Í gærkvöldi báðu þær mig að tryggja að vekjaraklukkurnar þeirra væru stilltar á hálf sjö. Þær ætluðu að vakna alveg sjálfar, en ég skyldi bara kúra róleg, þær myndu vekja mig.

Klukkan hálf sjö í morgun byrjuðu klukkurnar þeirra að orga, en systur sváfu hinar rólegustu áfram um stund. Margrét í sínu rúmi, en Elísabet hafði laumast uppí til mín um miðja nótt. Loksins var slökkt á klukkum og Margrét tifaði yfir, vakti Elísabetu og báðar laumuðust fram. Bauk inni í skáp undir tröppunum og ég var eiginlega alveg við það að festa svefn á nýjan leik. Þá byrjuðu tveir litlir englar að syngja afmælissönginn fyrir mig. Krúttin búin að skríða inn í skáp, ná í pakka sem var keyptur á laugardaginn og svo fékk ég risaknús og kossa.

Gjöfin? Hálsmen, sem að sjálfsögðu heitir "gullmoli" í höfuðið á þeim og lítill súkkulaðikassi sem við getum borðað í sameiningu seinna í dag InLove

Svona eiga afmælisdagar að vera. Og frúin væntanleg heim í kvöld.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Til hamingju með daginn og börnin og frúna og ... og.. gullmolann.

Jenny Una Eriksdóttir má ekki sjá pakka neinsstaðar því þá á hún samstundis afmæli, syngur afmælissöngin á tveimur tungumálum og klappar geysilega fyrir sjálfri sér.  Lífið er frábært.

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.8.2007 kl. 14:15

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Æi, skelltu einu enni þarna í afmælissönginn, er eitthvað sparsöm í dag

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.8.2007 kl. 14:16

3 identicon

Til hamingju með daginn, mín kæra!

A "blogfriend" 

hke (IP-tala skráð) 28.8.2007 kl. 14:18

4 identicon

Ó, til hamingju kæra frú! Megir þú lengi lifa, húrrahúrrahúrrahúrrrah! Var reyndar að átta mig á því að frú K bætti einu laufléttu ári á sig fyrir skemmstu, svo hugheilar afmæliskveðjur til ykkar beggja. Frá frú Urr

Urður (IP-tala skráð) 28.8.2007 kl. 15:07

5 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Takk, takk, takk, thank you og dziekuje.

Ég skal skila kveðjunni, en svona lauflétt ár hafa náttúrulega ekkert vægi, sjáðu til. Ég þarf hins vegar kveðjur, huggunarorð, samúð...

Ragnhildur Sverrisdóttir, 28.8.2007 kl. 15:25

6 Smámynd: Kristín Björg Þorsteinsdóttir

Til hamingju með daginn!

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 28.8.2007 kl. 15:41

7 identicon

Til hamingju með daginn!

Ég borðaði hádegismat í dag með Möggu og við töldum nauðsynlegt að opna fljótlega rauðvínsflösku(r). 

Leifur (IP-tala skráð) 28.8.2007 kl. 16:57

8 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Takk og takk og takk

Leifur og Magga: Olla var að enda  við að lýsa áhuga á hittingi, svo grúppan þarf bara að fara að negla niður tíma ;)

Ragnhildur Sverrisdóttir, 28.8.2007 kl. 17:27

9 Smámynd: Sigríður Jósefsdóttir

Hamingjuóskir með daginn.  Já, og til hamingju með að vera orðin fulltrúi okkar Ísfirðinga í sjónvarpi allra landsmanna.  Veit að þú átt eftir að standa þig eins og hetja.    Bestu kveðjur úr efri byggðum....

Sigríður Jósefsdóttir, 28.8.2007 kl. 22:09

10 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Þakka þér fyrir, Sigríður. Ekki vissi ég nú að þetta væri orðið opinbert. En ég er ákaflega montin af þessu, mér finnst mikill heiður að fá að vera í liði Ísafjarðar :)

Ragnhildur Sverrisdóttir, 29.8.2007 kl. 00:13

11 Smámynd: Sigurlín Margrét Sigurðardóttir

Til hamingju með daginn sem var í gær!  Síðbúin afmæliskveðja SMS

Sigurlín Margrét Sigurðardóttir, 29.8.2007 kl. 07:29

12 identicon

Leiðrétting:

Reyndar ertu alls enginn gullmoli, heldur gullklumpur. Ég bæti þessu við, því hér er blöggið þar sem væmnin drýpur af hverju atkvæði.

En ég býst við að burðarþolssjónarmið hafi ráðið því að þú fékkst gullmolann af þessu tilefni. Og þú færð engar samúðarkveðjur frá mér, það ættirðu að vita.

 A "blogfriend"

hke (IP-tala skráð) 29.8.2007 kl. 10:22

13 Smámynd: Sigríður Jósefsdóttir

http://www.bb.is/Pages/26?NewsID=104860 Hér er linkurinn á fréttina sem var á www.bb.is í gær.

Sigríður Jósefsdóttir, 29.8.2007 kl. 12:53

14 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Held að það sé einhver vírus í tölvunni minni. Eða getur verið að hke hafi verið næs í alvörunni?

Neeeee.... hlýtur að hafa verið sark..

Ragnhildur Sverrisdóttir, 29.8.2007 kl. 20:30

15 identicon

I blame Cutty Sark.

A "blogfriend" 

hke (IP-tala skráð) 29.8.2007 kl. 21:25

16 identicon

Og varðandi sjónvarpsstöntið - djö**** sem þú átt eftir að fá discount í snyrtivöru ónefndum verslunum í vetur.

hke (IP-tala skráð) 29.8.2007 kl. 21:37

17 Smámynd: Vera

Til lukku með daginn

Kv. Vera

Vera, 29.8.2007 kl. 22:31

18 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Æ, milljón þúsund þakkir fyrir allar kveðjurnar.

Ég þarf ekki að hafa neinar áhyggjur af aldrinum því þetta er auðvitað hárrétt hjá hke, að ég mun geta farðað þetta allt af mér. Þegar ég var í sjónvarpinu fyrir margt löngu þá gat ég ekki gengið framhjá snyrtivöruverslun án þess að kellingar við afgreiðslu kæmu hlaupandi út á götu með fulla poka af prufum. "Rosa gott að setja þetta undir augun á kvöldin og hitt á augnlokin og svo er hérna gott rakakrem á vangana, en ég mæli með þessu hérna á hálsinn...."

Mikið svakalega höfðaði þetta til mín. Ójá, það gerði það.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 30.8.2007 kl. 10:28

19 identicon

Til hamingju með afmælið og þessar skemmtilegu stelpur! Þú ert nú ennþá svo ung að þú þarft enga huggun. Þetta bara batnar

Ásdís Haraldsdóttir (IP-tala skráð) 31.8.2007 kl. 07:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband