30.8.2007 | 10:24
Bölv og ragn
Systur eru mjög iðnar að gera athugasemdir, ef ég slysast til að blóta. "Við heyrum í þér," segja þær ef ég missi eitthvað miður fallegt út úr mér. Og ef ég er fjarri, til dæmis hinum megin í húsinu, og muldra eitthvað í barm mér þá heyrast hrópin út á götu: "VIÐ HEYRUM Í ÞÉR!!"
Mér finnst þær ganga dálítið langt þegar ég fussa kannski og sveia, án þess þó að blóta, en fæ yfir mig óbótaskammir. "Ég var ekkert að blóta," segir ég þá, en fæ gjarnan svarið: "Nei, en þú talaðir dálítið blótlega!".
Ekkert má nú
Þegar Kata kom heim frá Belgíu á þriðjudag færði hún mér forláta lyklakippu með Kolbeini kafteini úr Tinna-bókunum. Ég sagði stelpunum að Kolbeinn skammaðist út í eitt alla daga, en blótsyrði hans væru afar sérstök. "Kolaðir kolkrabbar", "Hoppandi sæhestar" o.s.frv.
Systrum fannst þetta sniðugt og stukku strax á hugmyndina um að ég tæki upp "kolbeinsk" blótsyrði, því þau væru ekkert ljót. Ég samþykkti það og bað þær að aðstoða mig við að finna skemmtileg blótsyrði.
Margrét ætlaði aldrei að geta sofnað í gærkvöldi, hún velti þessu svo mikið fyrir sér. Hún kom tvisvar fram og gaf mér hugmyndir: "Syfjaðar skjaldbökur!", "Brennandi margglyttur!" og "Sökkvandi skip" voru meðal blótsyrðanna sem hún stakk upp á og tengdust hafinu, sem er auðvitað þema Kolbeins.
Svo varð hún syfjaðri og af því að hún er jú þrátt fyrir allt 6 ára stelpukrútt, en ekki gamall togarajaxl, þá fóru blótsyrðin að draga dám af því: "Klórandi kettlingar" var ein hugmyndin og sú síðasta, áður en hún datt út af var "Dansandi hafmeyjar"
Ég sé mig í anda blóta á þennan hátt. "Klórandi kettlingar, hvað þetta er leiðinlegt veður, endalaus rigning!!!"
Og ef ég klemmi putta þá öskra ég örugglega upp yfir mig: "Á-Á-Á-Á!! DANSANDI HAFMEYJAR!!!!"
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ragnhildur mikið hef ég gmana f að lesa bloggið um ykkar Kötu yndislegu dætur. Hvílík forréttindi það eru að eiga þessa engla og fá tækifær til að kenna þeim allt það besta se maður kann og stuðla aðþví að þær verði heilsteyptar og sjálfsöruggar konur þegar fram líða stundir.
En það er mikil ábyrgð að mmóta litlar sálir; ekki les ég annað út úr bloggi ínu en þið vandið ykkur og séuð með betri foreldrum.
Já, svo ertu Meyjuskratti eins og ég; Meyjan hefur mér alltaf fundist leiðinlegast allra merkja, þessi nákvæmni og eðlislægu leiðindi. Ér þann 24 en Ljón g Meyja skiptast ýmist 32 eða 4. hEF ÞVÍ LENGI HALDIÐ FRAM AÐ ÉG SÉ EIGNLEGA LJÓN.
Forvitna blaðakonan, 30.8.2007 kl. 14:27
Klikkaði of fljótt; en ætlaði að bæta við að eftir því sem ég eldist finn ég meyjuna æ meira ríkjandi í mér. En það mun hafa forðað mér frá ævilöngum leiðindum að vera rísandi Bogamaður - og já þess vegna er ég svona skemmtileg. Takk aftur fyrir bloggið þitt, ég er með dótturson sem er sjö ára og það er yndislegt að tala við þessi börn og fá spurningar og vangaveltur sem maður gæti ekki ímndað sér að svona ung börn gætu haft á reiðum höndum.
Til lukku með afmælisdaginn unga kona.
Forvitna blaðakonan, 30.8.2007 kl. 14:31
Bestu þakkir ;)
Ég er sammála þessu með leiðindin og Meyjuna og hef þurft að berjast við helv..., ég meina dansandi hafmeyju-smámunasemina alla ævi. Og tuðið, Drottinn minn! Enginn slær Meyjunni við í klórandi kettlinga tuði!
Ragnhildur Sverrisdóttir, 30.8.2007 kl. 14:47
Datt hingað inn í fyrsta sinn og datt bókstaflega langt aftur í tímann í færslum. Virkilega gaman að lesa um daglegt líf dætra þinna, þú segir svo skemmtilega frá því. Er sjálf með börn og maður sér margt líkt í þeim. Svona getur hversdagslífið verið dásamlegt!
Edda (IP-tala skráð) 30.8.2007 kl. 22:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.