Skólavinkonur

Systur eiga skólavinkonur í Fossvogsskóla. Það eru tvær stelpur úr 7. bekk, sem gera aðlögun að skólalífinu auðvelda. Katla er skólavinkona Elísabetar og Rakel skólavinkona Margrétar. Um daginn kom Katla í stutta heimsókn hingað heim, stelpurnar sýndu henni herbergið sitt og buðu upp á köku. Hún gaf Elísabetu lítinn hring um daginn og hann er settur upp á hverjum morgni. Í morgun bankaði Rakel upp á rétt fyrir kl. 8 og spurði hvort hún mætti ganga með stelpunum í skólann. Þetta vakti auðvitað mikla lukku. Að vísu gekk ég í humátt á eftir þeim alla leið, því þrátt fyrir að stelpunum finnist Rakel frábær þá er dálítið stórt skref að ganga mömmulaus í skólann í fyrsta skipti.

Það eru mikil forréttindi að hafa stelpurnar í skóla þar sem svona vel er um þær hugsað. Skólavinkonurnar eru alveg ómetanlegar. Ekki átti ég von á að svona ungar stelpur væru svona hlýjar og yndislegar við sex ára kríli. Þær sinna þeim í frímínútum, teikna fyrir þær myndir og leiða þær um allar trissur. Yndislegar, alveg hreint. Og mikið óskaplega er gott fyrir lítil kríli, sem hafa yfirgefið öryggi leikskólans, að fá svo góðar fyrirmyndir.

Svo er líka ósköp notalegt hvað skólinn er í raun lítill. Núna eru bara tveir 6 ára bekkir og skólinn er barnaskóli í gömlu merkingunni, því hann nær bara upp í 7. bekk. Unglingarnir fara í annan skóla. Skipað er í 6 ára bekkina eftir búsetu, svo allir krakkar austan megin í dalnum eru í öðrum og krakkarnir vestan megin í dalnum í hinum. Þetta þýðir auðvitað að þegar við göngum í skólann eða heim á leið eru bekkjarfélagarnir á sama vappi allt í kringum okkur. Hérna í götunni eru þrír krakkar í sama bekk og systurnar og einn til viðbótar í næsta húsi fyrir neðan, sem sagt sex krakkar á sömu torfunni. Þetta er eins og að búa í litlu þorpi Smile


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ása Hildur Guðjónsdóttir

þetta fyrirkomulag er til fyrirmyndar

Ása Hildur Guðjónsdóttir, 31.8.2007 kl. 11:01

2 Smámynd: Kristín Björg Þorsteinsdóttir

Þessi þorpsfílingur er dásamlegur. Og enn ætla ég að mæra Vogahverfið. Hér er þessi litli skóli - aðeins tveir bekkir í hverjum aldurshóp, raunar bara einn sex ára bekkur í ár. Svo er það Sóheimabókasafnið sem er eins og lítill samkomustaður bæði barna og fullorðina. Að ég tali ekki um fiskbúðina Hafrúnu! Að koma þangað er eins og að koma á hverfiskrána.....

Mínar hafa átt svona skólavini en það er ekki svona öflugt kerfið hér. Þetta er dásamlega krúttlegt......

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 31.8.2007 kl. 13:34

3 Smámynd: Svanhvít Ljósbjörg Guðmundsdóttir

Ég hafði ekki heyrt um svona skólavinkonur áður en þetta er mjög sniðugt. Tíðkast þetta í mörgum skólum?

Svanhvít Ljósbjörg Guðmundsdóttir, 31.8.2007 kl. 16:24

4 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Þetta er frábært kerfi. Ég veit ekkert um hversu víða þetta er, en veit þó frá frænku minni að þetta hefur verið svona í Árbænum. Við erum líka alveg einstaklega heppnar með skólavinkonur, held ég að hljóti að vera. Það eru varla allir skólavinir svona ótrúlega hlýir og ræktarsamir.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 31.8.2007 kl. 16:52

5 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Mér finnst þetta ÆÐISLEGT!!! Bæði gott fyrir þær yngri og líka þroskandi fyrir stóru stelpurnar. Foreldrar þurfa síður að óttast að litlu molarnir þeirra lendi í stríðni eða leiðindum þegar stórir gullmolar passa upp á þá! Ég er stórhrifin af þessu. Held  að dæturnar þínar hafi verið mjög heppnar með skólavinkonurnar!

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 31.8.2007 kl. 19:53

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þetta er með flottari hugmyndum í skólastarfi sem ég hef lesið lengi.  Frábært að eiga svona skólavinkonur.

Æi það var svo þorpslegt og huggó í Meló upp úr miðri síðustu öld (vá æmóld) þegar heimurinn snérist um "Gamla" og "Nýja" port.  Nostalgíukast.

Jenný Anna Baldursdóttir, 31.8.2007 kl. 20:55

7 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Jú, það var ósköp notalegt að koma inn í kringluna í Meló, þaðan inn í stóra anddyri og flottu stiga upp á loft ;) Og Hagaskóli bara hinum megin við, með kristilegan kærleikann á milli

Ragnhildur Sverrisdóttir, 1.9.2007 kl. 00:11

8 identicon

Takk kærlega Ragnhildur fyrir hlý orð í garð Fossvogsskóla. Því miður er umræðan um skólana oft á neikvæðum nótum í þjóðfélaginu. Svona umræða eins og hér að ofan er eins og hlýr og notalegur andvari og eflir okkur kennara til dáða.

Við í Fossvogsskóla erum mjög ánægð með hvernig 12 ára nemendur skólans hafa tekið vel á móti litlu krílunum í 1. bekk. Fyrstu skrefin í skóla eru gífurlega mikilvæg og 12 árarnir hafa svo sannarlega létt þeim skrefin. M.a. hafa þau stóru sýnt þeim litlu skólann og farið í leiki með þeim.

 En það er eitt að lesa um þetta á blogginu hjá Ragnhildi annað er að upplifa þetta. Því býð ykkur að koma í heimsókn í skólann því sjón er sögu ríkari.

Árni Freyr Sigurlaugsson (IP-tala skráð) 1.9.2007 kl. 14:34

9 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Æ, ósköp er nú notalegt að fá þá kveðju að umræðan efli kennara til dáða  Ég er alveg sammála því að neikvæðnin er oft mjög mikil og það hlýtur að reynast bæði kennurum og nemendum erfitt. Mér sýnist hins vegar vinnugleðin svífa yfir vötnum í Fossvogsskóla og hlakka til framhaldsins.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 2.9.2007 kl. 21:23

10 identicon

Heil og sæl Ragnhildur.

Halla, bekkjarkennari Kötlu benti mér á bloggsíðuna og þína. Langar til að byrja með að þakka hlý orð í garð Kötlu minnar. Mér heyrist að 7. bekkingar séu alsælir með þetta nýja fyrirkomulag og sýnist mér þau taka þetta mjög alvarlega.

Þetta er svona ein af þeim hugmyndum sem maður skilur ekki að hafi ekki verið notuð áður, klárlega lærdómsríkt fyrir báðar bekkjardeildirnar.

Frábært framtak hjá Fossvogskóla.

Bestu kveðjur.

Ingunn

Ingunn Gylfadóttir (IP-tala skráð) 5.9.2007 kl. 12:39

11 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Sæl Ingunn.
Þetta er snilldarfyrirkomulag, þótt ég leyfi mér að efast um að allir litlu ormarnir séu jafn lánsamir með skólavini og stelpurnar okkar 

Ragnhildur Sverrisdóttir, 5.9.2007 kl. 21:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband