5.9.2007 | 09:46
Tennur
Þótt bloggfærslur hafi legið niðri um hríð hefur verið nóg að gera í Logalandinu.
Fyrstu skóladagarnir hafa gengið að óskum hjá systrum. Þær hafa fengið lítil lestrarhefti heim með sér og eru duglegar að æfa lesturinn á hverjum degi.
Í gær byrjuðu þær að æfa sérstaklega stafinn O. Þær fengu blað með sér heim, þar sem þær áttu að æfa að skrifa stórt og lítið O og svo áttu þær að teikna fjórar myndir, af einhverju sem hefði O í heitinu. Báðar teiknuðu þær ost, orm og ofn og skrifuðu heitin samviskusamlega fyrir neðan myndirnar. Þegar að fjórðu myndinni kom teiknaði Margrét stelpu að moka, enda er jú O í þeirri sögn. Elísabet fór aðra leið. "Ég vil teikna: O, hvað þetta er skemmtilegt!" sagði hún.
Þar sem ég er fullorðin og löngu farin að hugsa í þröngu boxi skildi ég ekki hvernig hún ætlaði að fara að því að teikna "O, hvað þetta er skemmtilegt!" Ég gerði meira að segja þau mistök að malda aðeins í móinn, en Elísabet lét það sem vind um eyru þjóta.
Hún teiknaði fallega mynd af glaðlegri stelpu í rauðum kjól og appelsínugulum skóm. Og skrifaði undir: "O, hvað þetta er skemmtilegt!"
Lífið er ekki bara skóli og leikur þessa dagana. Margrét fór til tannlæknis á mánudag, enda hafði Guðrún tannlæknir séð lítinn brúnan blett á tönn í sumar og vildi endilega grípa inn í áður en Karíus og Baktus næðu að hreiðra þar um sig. Margrét stóð sig eins og hetja allan tímann. Hún var orðin óróleg þegar leið á, en þá kveikti Guðrún á videóskjá fyrir ofan kollinn á Margréti, sem róaðist um leið og Andrés Önd og félagar birtust. Stundum kemur sér vel hvað hún er mikill Andrésar-aðdáandi.
Í dag á Elísabet að fara til tannlæknis. Guðrún ætlar að fjarlægja tvær framtennur í neðri gómi, enda eru tvær fullorðinstennur komnar upp á bakvið þær. Barnatennurnar sitja sem fastast og Guðrún lætur þær ekki komast upp með slíkt.
Í gær var Elísabet á frístundaheimilinu á meðan Margrét fór til tannlæknis og í dag ætlar Margrét að bíða þar eftir systur sinni. Svo ætla báðar í fimleika, Margrét með sitt trausta og stóra skarð í efri góm og Elísabet með nýja skarðið í neðri góm. Sem verður að vísu ekkert skarð, því fullorðinstennurnar eru auðvitað komnar upp. Elísabetu finnst það dálítið svindl. Þegar maður er 6 ára eiga barnatennurnar að fara fyrst og fullorðinstennurnar að koma svo.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.