6.9.2007 | 14:03
Plottið
Heimsókn Elísabetar til tannlæknisins í gær gekk mjög vel. Hún fékk deyfingu og kveinkaði sér ekkert á meðan, enda fór Guðrún tannlæknir mjög varlega. Svo greip Guðrún töng, önnur framtönnin fauk og sú næsta mínútu síðar. Ekki mikil fyrirstaða þar.
Elísabet fékk litla grisju að bíta í á meðan blóð vætlaði úr holunum eftir tennurnar. Hún var dálítið spæld þegar blóðrennslið stöðvaðist skömmu síðar, enda hafði hún ætlað sér að sýna krökkunum í skólanum óhugnaðinn. Hún tók hins vegar blóðuga grisjuna með sér í staðinn.
Eftir fimleikana síðdegis í gær gaf ég stelpunum að borða, en Kata tafðist í vinnunni. Þegar hún kom heim, rétt fyrir klukkan átta, bað ég stelpurnar að fara niður og hátta sig og leyfa okkur að borða í ró og næði smá stund.
Systur eiga ákaflega erfitt með að halda sig fjarri mæðrum við þessar aðstæður, enda hafa þær alltaf frá svo mörgu að segja. Það liðu því ekki margar mínútur þar til Elísabet tiplaði upp stigann. Hún var komin í náttfötin og sagðist þurfa að segja okkur svolítið. En væflaðist dálítið og vissi ekki alveg hvernig hún átti að orða hlutina. "Sko, mamma, viltu koma aðeins niður til Margrétar. Hún er svo leið."
Kata var undrandi á að heyra þetta, enda hafði Margrét verið sönglandi sæl mínútu fyrr. Hún spurði Elísabetu hvað hefði komið fyrir, en Elísabet varð öll undarleg og virtist engu geta svarað. Okkur grunaði einna helst að hún hefði gert eitthvað á hlut systur sinnar, en hún sór að svo væri ekki. En hélt áfram að vandræðast eitthvað. Loks gat hún ekki þagað lengur og viðurkenndi að hún hefði bara sagt að Margrét væri leið, svo mamma þeirra kæmi niður til þeirra. "Af því að þið voruð búnar að segja okkur að vera niðri, en ég veit að þú myndir koma niður ef Margrét væri leið og þá erum við eiginlega ekki að trufla af því að mömmu koma ef stelpurnar eru leiðar."
Kata sagðist koma niður eftir augnablik. Þá varaði Elísabet hana við: "Sko, þegar þú kemur niður þá verður Margrét eins og hún sé leið, af því að við vorum búnar að ákveða þetta saman."
Þær systur voru sem sagt búnar að plotta þetta allt saman.
Svei mér þá!
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Vó, þarna eru konartistar par exelance á ferðinni. Varúð
Jenný Anna Baldursdóttir, 6.9.2007 kl. 16:07
Já, ég veit! SCARY
Ragnhildur Sverrisdóttir, 6.9.2007 kl. 16:32
Iss, þær eru bara skapandi í hugsun og úrræðagóðar.
Annars á ég fullt í fangi með að vera kvikindisleg hérna, geturðu ekki bloggað eitthvað um þig?
Og það var Þóra augnlæknir og Guðrún tannlæknir og Kalli Jóns og Gústi læknisins og Nonni Sæmundar og Halli rakarans og Fúsi Sigurleifs og Palli á Goðanum og Denni á Efstabæ - en ekki ég.
-hke
A "blogfriend" (IP-tala skráð) 7.9.2007 kl. 11:26
Hmmm, "blogfriend", ertu að kalla eftir umfjöllun um mig, eða sjálfa þig?? "-en ekki ég" hljómar pínu aumkunarvert.
Þá er það ákveðið, ég mun setja inn margar og ítarlegar bloggfærslur um þig. Ég veit líka hvað þú ÞRÁIR athygli alltaf hreint !
Ragnhildur Sverrisdóttir, 7.9.2007 kl. 15:05
Þær eru sko alveg óborganlegar þessar systur, alltaf gaman að fylgjast með uppátækjunum þeirra
Sigrún (IP-tala skráð) 7.9.2007 kl. 17:17
Hehe. Ég laumast oft til að lesa bloggið þitt. Þú segir svo skemmtilega frá, og svo eru litlu stelpurnar þínar alltof fyndnar! Þetta kallar maður að kunna að bjarga sér!
Oddný Sigurbergsdóttir, 8.9.2007 kl. 11:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.