9.9.2007 | 15:08
Fiskur og fleira
Í dag eru sex ár liðin frá skírn systranna í Dómkirkjunni.
Sex ár! Ef ég hefði átt að giska, svona út frá tilfinningu minni, þá hefði ég talið þau þrjú. En auðvitað ertu skólastelpurnar mínar vitnisburður um annað.
Í gærkvöldi fórum við Kata á veitingastaðinn Fiskmarkaðinn í Aðalstræti, þar sem áður var Maru og enn fyrr Sticks 'n' Sushi. Hrefna Rósa Sætran landsliðskokkur kom þessum stað víst á laggirnar núna í ágúst, en við vorum að fara í fyrsta sinn. Tær snilld, svo einfalt er það nú! Við Kata ákváðum að fá sýnishornamatseðil, þótt við værum dálítið hikandi, því ég hef ansi oft upplifað að slíkir matseðlar eru "drýgðir" með óspennandi réttum. Ekki þarna, ó nei og aldeilis ekki! Hver unaðslegi og gullfallegi rétturinn á fætur öðrum sveif á borðið og við vorum alsælar og pakksaddar á eftir. Mæli með þessum stað og fer fljótlega aftur. Þarna er aðallega fiskmeti, þótt kjötætur geti áreiðanlega fengið fylli sína líka, og svo er allt matreitt á asíska vísu. Himneskt, svo einfalt er það nú.
Og svarið er nei: ég á engan hlut í þessum veitingastað og þekki eigandann ekki neitt nema úr smjörauglýsingunum í sjónvarpinu
Við mægður fórum góðan göngutúr á Seltjarnarnesi í morgun, þegar við gengum til styrktar rannsóknum á brjóstakrabbameini. Bryndís systir vakti athygli okkar á göngunni og gekk með okkur. Svo troðfyllti hún okkur af ljúfasta brunch á eftir.
Núna er Kata á Keflavíkurflugvelli að reyna að komast úr landi. Hún átti bókað í flug til Minneapolis, en því var aflýst sisona rétt áðan. Líklega vegna aðgerða flugmanna, sem telja Icelandair sífellt vera að svindla á sér. Úps, nei, alveg rétt, flugmenn eru víst alls ekki í neinum aðgerðum, ef marka má ummæli formanns þeirra á mbl.is. Samt raskast flug út og suður og er jafnvel fellt niður. Skrítið.
Systur eru núna á leið í bíó með skólavinkonum. Elísabet og Margrét verða svo sannarlega í góðum höndum, því skólavinkonur þeirra, Katla og Rakel, ætla með þeim, en líka Begga og Þóra frænka Kötlu og litla systir hennar.
Ég á fullt í fangi að fylgjast með skipulagningunni, hér hringjast tólf ára stelpurnar á fram og til baka um hverfið og systurnar reyna að vera með á nótunum. Ég veit þó að þær ætla í Smárabíó og að ég þarf að skutlast með þær allnokkrar þangað.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Mig langaði svo í þessa göngu úti á Nesi í morgun en var búin að lofa að syngja í messu í Dómkirkjunni. Við kórfélagar skiptumst á.
Gunnhildur Óskarsdóttir vinkona mín er ein af þessum frábæru konum sem ætla að ganga í New York í næsta mánuði til styrktar krabbameinsrannsóknum. Gunnhildur greindist fyrir rúmum níu árum með krabbamein og er því miður ekki laus við meinið. Þær eru að fara saman 22 konur og ætla að leggja upp í þessa miklu göngu. Kraftakonur svo sannarlega.
Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 9.9.2007 kl. 15:53
Jenný Anna Baldursdóttir, 9.9.2007 kl. 16:21
Gunnhildur stýrði þessu öllu saman, lagði línurnar með gjallarhorni og dreif svo alla af stað. Við gengum nú skemmri hringinn, enda var hinn líklega of langur fyrir stutta fætur. Þeim systrum fannst þetta mjög áhugavert, þurftu mikið að spyrja um brjóstakrabbamein og rannsóknir, ég lýsti eftirlitinu, sem við mamma þeirra förum reglulega í eins og aðrar konur og notaði meira að segja tækifærið til að lofsyngja íslenska kerfið, sem nær til svo margra kvenna. Elísabet hafði sérstakan áhuga á því, en þegar ég ætlaði að útskýra nánar af hverju kerfið virkaði svo vel hér, en t.d. ekki í Ameríku, þá reyndist hún með þetta allt á hreinu og sagði eitthvað á þá leið, að í Ameríku ættu margir heima svo langt, langt frá spítala og þyrftu kannski að keyra í marga klukkutíma eða rosamörg korter og kæmust bara ekkert á spítala og þá væri ekki hægt að rannsaka.
Þannig er nú það.
Ragnhildur Sverrisdóttir, 9.9.2007 kl. 17:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.