Göngur og gítarar

Annríki að baki. Systur vöknuðu eins og englar í morgun og voru svo snöggar að klæða sig og borða morgunmat að við höfðum nógan tíma til að rölta í skólann. Marta María slóst í för með okkur og þær vinkonurnar voru alsælar að fá að ganga.

Já, að ganga. Því jafnvel þótt við búum í aðeins 10 mínútna fjarlægð frá skólanum, á gönguhraða 6 ára kríla, þá gerist það allt of oft að við skutlumst á bílnum nær alla leið. Ég hef að vísu kennt tíðarfarinu um...

Skólinn mælist til þess að foreldrar láti krakkana rölta í skólann, sem ég skil ósköp vel. Það á auðvitað ekki að venja þau á að fara allra sinna ferða í bíl. Stelpurnar okkar eru að vísu enn mjög langt frá því að teljast til kyrrsetufólks, en maður á ekki að koma þessari leti inn hjá þeim.

Þær voru nú ekkert mjög latar þar sem þær skoppuðu um Ármannsheimilið í fimleikum síðdegis.

Á morgun er enn einn spennandi dagurinn. Þær fá skriftarblað heim. Blað númer tvö, hvorki meira né minna. Ég veit ekki enn hvaða bókstafur verður tekinn fyrir þessa vikuna, en minnug þess hvernig Elísabet teiknaði "O, hvað þetta er gaman" þá get ég varla beðið. Ég verð nú samt að gæta mín á að hvetja hana ekki of mikið, annars verða allar hennar myndir af "Ó, en leiðinlegt" eða "Á, ég meiddi mig" eða eitthvað í þeim dúrnum.

Afi Ís og Amma Dedda litu við fyrr í dag. Afi var með heilan suðusúkkulaðipakka fyrir hvora systur fyrir aftan bak, eins og hans er von og vísa. Og Amma brá sér niður í herbergi til stelpnanna, greip nýja gítarinn hennar Möggu, stillti hann aðeins og tók svo lagið. Þær systur voru gjörsamlega agndofa, enda höfðu þær ekki minnstu hugmynd um að amma þeirra væri gamall gítarsveiflandi skáti.  "Amma gat alveg spilað á gítarinn minn!" sagði Margrét með andakt þegar mamma og pabbi voru farin. En var samt mjög efins á svip og spurði í einlægni: "Geta ömmur í alvöru spilað á gítar??"

Amma Dedda getur það í alvöru.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Næst kemur hann væntanlega með kandís? En ég hefði verið til í að sjá þessi gítartilþrif. Ójá.  "Ég langömmu á" og allt það.  Verður ekki metið til fjár. Ég skal trúa að þær hafi verið imponeraðar. Reyndar er frk. H í fimleikum á sama tíma, en systur eru sagðar afar einbeittar í iðkuninni, og frúin ekki síður einbeitt við bóklestur.

Liggjum svo á bæn fyrir upplýsingafulltrúa utnr. Það er bara ein rétt manneskja í þetta djobb.

hke (IP-tala skráð) 10.9.2007 kl. 21:13

2 Smámynd: Hugarfluga

Þær eru svo yndislega ljúfar og mannlegar færslurnar þínar og notalegar að lesa. Stelpurnar þínar eru heppnar að eiga svona góðar mömmur.

Hugarfluga, 10.9.2007 kl. 21:54

3 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Hann mun ávallt og ævinlega koma með Síríus suðusúkkulaði. Annað kemur ekki til greina. Og þær systur eru alsælar, enda er þetta eina nammið sem er beinlínis hollt. Afi segir það.

Hehehe, já, fimleikarnir eru frábært tækifæri til að líta í bók. Hvern hef ég hunsað algjörlega?? Varla þig sjálfa?? Mömmu þína kannski??

Ligg á bæn, en mikið óskaplega er mikil ásókn í djobbið!?

Æ, takk Hugarfluga fyrir að segja svona hjartavermandi hluti  (og rétt mátulegt á hke að vera spyrt við eitthvað svona hjartnæmt, henni veitir ekkert af því)

Ragnhildur Sverrisdóttir, 10.9.2007 kl. 23:37

4 identicon

Ekki mig eða ömmuna, bara stubbalínu. Hún tilkynnir mér í hvert skipti þegar hún sér ykkur, fer sjálf inn og út úr húsinu, enda orðin svo fullorðin *hóst*

Og hvað hjartnæmið varðar er ég algerlega ónæm. Og bráðum verða heyrnartaugarnar ónýtar líka, frk. Kisa er nefnilega byrjuð að spila á fiðlu. Meira um það síðar (og annars staðar).

hke (IP-tala skráð) 11.9.2007 kl. 09:02

5 Smámynd: Kristín Björg Þorsteinsdóttir

Gott og gaman að ganga í skólann! Næsti mánuður er "Ég geng í skólann" mánuðurinn og verður 3. október aðal dagurinn. Þetta er fjölþjóðlegt átak http://www.iwalktoschool.org/ sem fór í gang fyrir nokkrum árum og erum við með í fyrsta skipti í ár. Það er Lýðheilsustöð, ÍSI, Lögreglan, Landsbjörg og Umferðarstofa (vona að ég gleymi engum) sem standa að þessu átaki. Spennandi að sjá hvernig til tekst.

Svo sá ég svo flotta mynd í einhverju blaði í morgun af öllum hjólunum fyrir utan Fossvogsskóla. Þarna eru náttúrulega kjöraðstæður til hjólreiða.

Mín yngir tók strætó bæði í og úr karate í gær. Með símann og iPodinn og fannst gaman. Skemmtilegast fannst henni að þegar hún kom upp í strætó þá var þar fyrir stelpa sem var með hljóðfæri með sér og fór úr við tónlistarskólann þar sem mín stundaði nám - "og mamma - hún kom upp í strætó þar líka - við vorum í sama strætó á sama tíma"

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 11.9.2007 kl. 09:55

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Svona afar og ömmur eru nauðsyn á hvert heimili á landinu.  Er þetta par tilbúið til fjölnýtingar?

Hér spilar afinn á gítar og það er mikið sungið.  Amman er hins vegar forkastanlega laglaus og kann ekki nótu en bætir það upp með hm.. hvernig á ég að orða það... hm.. GJAFMILDI.  Segi svona.

Takk fyrir færslu.

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.9.2007 kl. 11:10

7 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Já, frábært að rölta í skólann. Minnstu krílin nota ekki hjólin sín, en þær systur bíða spenntar eftir næsta skólaári, þá mega þær fara að hjóla

Og Jenný: Þetta par ER fjölnýtt, með sín 13 barnabörn og 5 barnabarnabörn.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 11.9.2007 kl. 20:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband