Í

Þá er það opinbert: Í er stafur vikunnar að þessu sinni. Stórt Í og lítið í.

Systur gripu blýanta í gær og fylltu úr heila línu hvor af stóru Í-i og heila línu þar fyrir neðan af litlu í-i. Svo æfðu þær aðeins fínhreyfingar með því að draga upp munstur og loks áttu þær að teikna fjórar myndir af einhverju með Í í heitinu.

Báðar byrjuðu á ís. Þær vildu hafa hann í brauðformi. Ísinn hennar Elísabetar var fremur hefðbundinn teiknimyndaís, með kirkjuberi á toppnum. Margrét teiknaði uppáhalds-ísinn sinn, tvílitan jarðarberja- og vanilluís. Það kostaði auðvitað töluverðar tilfæringar.

Þessu næst ákváðu systurnar í sameiningu að teikna Ísland. Ég hafði þungar áhyggjur af að það gæti reynst erfitt (alltaf þarf ég að vera með einhverjar áhyggjur út í bláinn!) Það var að vísu ekkert auðvelt og þær æfðu sig nokkrum sinnum á krassblað áður en þær voru ánægðar. Ég gerði mitt besta til að leiðbeina þeim, en hefði betur látið það ógert, enda var Ísland í minni útgáfu eins og tyggjóklessa.

Þriðja mynd Margrétar var af síma. Hún fór létt með að teikna einn slíkan. Bara einfaldan, aflangan síma, með mörgum tökkum. Og mér varð hugsað til þess hvað lífið hefði verið erfitt hérna í gamla daga. Ég man nefnilega vel eftir því þegar ég teiknaði síma. Stóran, svartan skífusíma með snúru úr heyrnartóli í símtækið og snúru úr símtæki í vegginn. Núna rissa þessi kríli bara upp eitt stykki gemsa.

Þriðja mynd Elísabetar var af Sísí, sem var auðvitað afskaplega vel valið, enda tvö í að finna í því nafni. Elísabet á litla frænku sem heitir Sísí og svo er þetta eitt allra algengasta kvenmannsnafn í lestrarbókum. Sísí í bókunum lifir einföldu og kyrrlátu lífi, virðist alltaf sitja á sama stað og horfa í kringum sig. Sísí sá sól. Sísí sá lás. Sísí á lás. Sísí sá lás og sól. Rólegt og kúl.

Fjórða mynd Elísabetar var af því rammíslenska fyrirbæri "trampolíni" Ég var að vonum stolt þegar hún skrifaði þetta forníslenska orð undir mynd af bláu trampolíni. Með öryggisneti.

Fjórða mynd Margrétar var í ætt við myndina sem Elísabet teiknaði um daginn, þessa sem hét "O, hvað þetta er skemmtilegt" og sýndi káta stelpu. Margrét teiknaði tvær stelpur, aðra stóra og hina minni. Sú stóra var að kitla þá minni í magann og undir myndinni stóð: "Í-Í-Í, hvað mig kitlar!"

Ég bíð spennt eftir næsta bókstaf.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jenný Anna Baldursdóttir, 12.9.2007 kl. 16:22

2 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Sísí fríkar...

Edda Agnarsdóttir, 13.9.2007 kl. 14:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband