13.9.2007 | 14:56
Dularfullu gleraugun
Við vorum alveg á hvolfi á þessu heimili í gær, hér gerðust svo undarlegir atburðir. Í aðalhlutverki dramans voru minnst tveir búalfar og tvenn gleraugu. Héldum við.
Allt havaríið byrjaði þegar ég sá að gleraugun mín lágu á stóra skammelinu við sófann í sjónvarpshorninu og ákvað að færa þau, enda aldrei að vita nema systur settust óvart á þau. Ég greip gleraugun og stakk þeim upp í bókahillu. En viti menn, þar lágu þá önnur fyrir og reyndust vera mín. Ég fór þá að rannsaka gleraugun sem ég var með í hendinni betur og hafði aldrei nokkurn tímann séð þau fyrr á ævinni.
Við Kata fórum á flug þegar við vorum að ímynda okkur hver gæti átt þessi gleraugu. Gat verið að fullorðnir Danir, sem voru hér í heimsókn á dögunum, hefðu skilið þau eftir? Nei, það var nú hæpið, enda hefðum við örugglega haft spurnir af því ef einhver þeirra saknaði gleraugna. Fyrir nú utan þá staðreynd að Danirnir rétt kíktu niður á neðri hæðina og hefðu varla sett gleraugu þarna frá sér. Systurnar sóru að þær hefðu ekki fært þessi gleraugu neitt til. Elísabet leit á þau og sagðist hafa séð mömmu sína með þau, en við vissum auðvitað betur.
Þá mundi ég að Amma Dedda hafði komið í heimsókn og spilað á gítar þarna niðri. Ég hringdi í hana, en það var nú mest til málamynda, því ég var búin að uppgötva að þetta voru nærsýnisgleraugu og mamma notar aldrei annað en dauf fjarsýnisgleraugu.
Um kvöldið tók Kata úr sér linsur, en fór svo að leita að gleraugunum sínum. Þá kom í ljós að þau voru ekki í gleraugnahulstrinu. Ó, nei, þau eru áreiðanlega á hótelherberginu í Minneapolis, stundi Kata sem hafði komið heim frá Bandaríkjunum um morguninn. En svo fékk hún brilliant hugmynd. Hún gæti kannski notað gleraugun dularfullu, sem enginn kannaðist við? Hún stökk fram, greip gleraugun og skellti þeim á nefið. Varð svo skrítin á svipinn, reif þau af sér, horfði fast á þau, setti þau upp aftur og sagði: "Þetta eru gleraugun mín!"
Við hefðum betur hlustað á Elísabetu, sem hafði auðvitað oft séð þessi gleraugu á mömmu sinni.
Kata er ekki enn búin að jafna sig á þessu. Ég er hins vegar viss um að þegar hún gerir það, þá sér hún að hún verður að eignast ný gleraugu. Þessi líkjast greinilega gleraugum sem aldraðir Danir eða ömmur ganga með.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þetta hafa augljóslega ekki verið nein Prada-gleraugu *hóst*
hke (IP-tala skráð) 13.9.2007 kl. 16:25
Jenný Anna Baldursdóttir, 13.9.2007 kl. 20:49
Þetta voru klárlega engin Prada-gleraugu, en þóttu reyndar alveg ágætlega smart, allt fram að þessari stundu. The optical fashion breytist greinilega á sama ógnarhraðanum og önnur tíska
Ragnhildur Sverrisdóttir, 13.9.2007 kl. 21:12
Þetta minnir á ævintýrin í Ólátakoti.
Lindgren hefði annars verið fullsæmd af þessari sögu.
Jón Steinar Ragnarsson, 14.9.2007 kl. 15:39
Hryllilega skemmtilegt í morgunsárið! TAKK.
Edda Agnarsdóttir, 16.9.2007 kl. 09:31
Ein spurning. Hvenær fáum við að sjá spretthörku þína og hæfileika í leikrænum tilþrifum í sjónvarpssal? (Eða, þurrlegu athugasemdirnar...)
Ein spennt
hke (IP-tala skráð) 16.9.2007 kl. 14:06
hehehe gaman að þessu. Maður hefur nú nokkuð oft orðið sér til skammar með því að leita dauðaleit að eigin gleraugum.. svo fær maður familíuna með sér í leitina. Það bregst ekki að stóðið horfir á mann með óræðum svip enda eru gleraugun oftast fundin á nefinu á manni sjálfum !
Ragnheiður , 16.9.2007 kl. 20:53
Mér skilst að lið Ísafjarðarbæjar í spurningakeppni sveitarfélaga mæti í sjónvarpssal 16. nóvember. Þá verður líklega búið að þyngja keppnina verulega, svo ég þarf ekki að hlaupa eins oft
Þetta var nú svona í léttari kantinum á föstudaginn, fannst ykkur ekki? "Hvað voru þorskarnir á færibandinu margir" í Ísbjarnarblúsnum. PLíS !!
Þetta með gleraugun: Ég hef nokkrum sinnum týnt gleraugum á nefinu á mér. Ég hef ALDREI skoðað mín eigin gleraugu í krók og kring án þess að þekkja þau. Það þarf nú alveg sérstaka rugludalla til þess
Ragnhildur Sverrisdóttir, 16.9.2007 kl. 21:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.