16.9.2007 | 21:59
Haust
Það er komið haust. Ég hef ákveðið að hætta að berja höfðinu við steininn í bullandi afneitun. Það er komið haust, ekki nokkur vafi á því.
Á föstudaginn tíndi ég síðustu rifsberin af runnunum hjá tengdó. Systur fóru með mér til að hjálpa. Sú hjálp fólst aðallega í að elta kött nágrannans um allan garð. Þegar það varð leiðinlegt fékk kötturinn að elta trefil um allan garð. Kötturinn mjálmaði, systurnar skríktu og ég hrópaði á 20 sekúndna fresti að þær skyldu sko eiga mig á fæti ef þær spörkuðu berjaskálunum um koll.
Á föstudagskvöldið fórum við í mat til Maríu og co. í Hafnarfjörðinn. Hinar fordekruðu systur fengu fótbolta-Bratz-stelpur og ótrúlega flott náttföt/heimakósýföt sem þær hafa varla farið úr síðan. Tilefnið var ekkert, María var bara nýkomin frá útlandinu og hafði ekki getað stillt sig um að kaupa gjafir. Gott mál. Og mikið er ég ánægð með fólk sem býður í mat sisona á föstudegi, gefur manni ljúffengan lax og byrjar helgina á réttum nótum. Ljúft.
Laugardagurinn var tilþrifalítill framan af, hófst með hefðbundnum klöttum í morgunsárið, en lauk með mikilli matarveislu hjá nágrönnunum á nr. 2. ásamt fleiri góðum gestum. Ég gæti alveg vanist því að láta elda ofan í mig veislumat alla daga, svei mér þá. Marta Bryndís sat hjá systrum á meðan, horfði á spæjarann Kalla Blómkvist og var sátt. Systur voru líka alsælar, þótt þær væru áreiðanlega að sjá myndina í fimmta skipti. Astrid Lindgren þolir alveg endurtekningar.
En ekki dugar að borða bara endalaust, svo í dag ákváðum við að ganga til Ásthildar systur í Kleifarásnum. Við vorum reyndar ekki svo hraustar að ganga alla leið úr Logalandinu, heldur ókum upp að stíflu og gengum upp með Elliðaám. Það var alveg mátulegur göngutúr fyrir sprækar stelpur og mömmur, sem voru búnar að borða yfir sig og það tvisvar frekar en einu sinni. Ferðin sóttist ákaflega seint, því á göngustígnum voru alls konar maðkar og margfætlur, sem þurfti að rannsaka. Margrét er sérstakur pöddurannsakandi og þurfti að skoða hvernig kvikindunum yrði við þegar þeim væri sleppt út í grasið, eða pollinn, eða moldina, eða á steininn. Okkur var farið að kólna þegar hún loks missti áhugann. Þá var systir hennar farin að hrylla sig svo mikið yfir öllu lífinu á göngustígnum að hún tiplaði á tánum næstu hundrað metrana. Svo gleymdi hún hryllingnum og hljóp eðlilega um.
Hjá Ásthildi byrjuðum við enn á ný að borða og borða og borða og borða og ekki var það nú allt eintóm hollusta. Svei mér þá.
Haustið er tími til að safna vetrarforða, en fyrr má nú aldeilis fyrr vera.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Haustið er dásamlegt og veturinn toppar allt.
Kveðja,
Vetrarbarnanefndin
Jenný Anna Baldursdóttir, 17.9.2007 kl. 00:35
Eru helgar ekki hreint út sagt dásamlegar
Mín fólst í óvissuferð með vinnufélögum á föstudag, sumarbústaðaferð með mínum einum á laugardag og Ladda sýningu í gær þar sem ég og mamma hlógum hreint alveg ógrulega. Það er fínt að vakna á mánudegi eftir svona dásemd.....
Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 17.9.2007 kl. 09:37
Ójú, helgar eru svo sannarlega dásamlegar
Það er stundum gott að gera helling um helgar, stundum gott að gera hreint ekki neitt. Ég þarf að fara að safna eldiviði í arininn, þá er mér slétt sama um haust og vetur.
Ragnhildur Sverrisdóttir, 17.9.2007 kl. 12:56
Ég verð nú samt að segja að þegar ég fór á fætur klukkan 06:00 var helst til dimmt fyrir minn smekk
Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 18.9.2007 kl. 06:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.