Boltinn

Systur sakna fótboltans. Þær hafa ekki farið á æfingu "alveg síðan þær voru litlar" segja þær. Alltaf sömu ýkjurnar á þeim bænum. En æfingar hafa vissulega legið niðri núna í september. Í október byrja þær aftur og þá geta þær tekið gleði sína.

Þær eru annars ósköp fótbolta-glaðar þessa dagana, Valsarar, með Rakel þjálfara innanborðs, búnir að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn. Við fórum nú ekki á völlinn í gær í góða veðrinu, enda voru systur á fimleikaæfingu. Og við fórum heldur ekki á dögunum, þegar Valskonur kepptu við KR. Þá fylgdumst við hins vegar með í sjónvarpinu hérna heima. Mér fannst nú alveg nóg um öll Vals-hvatningarhrópin, hvað þá þegar Kata bættist í hópinn, og tilkynnti að ég héldi með KR. Stelpunum fannst það hræðilegt. Og Margrét varð ákaflega sár á svipinn, horfði á mig ásakandi og spurði: "Heldurðu með KR þótt stelpurnar þínar séu í Val??"

My KR-days are over.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þær eru snillar!!! minni bara á uppskeruhátíð yngri flokka Vals um helgina þær verða að mæta.

Áfram Valur

LOS

Linda Ósk Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 19.9.2007 kl. 14:20

2 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Djísöss! Uppskeruhátíð? Og Kata ekki á landinu? Hver á þá að fara með þær á uppskeruhátíð? Það eru nú takmörk fyrir því sem ég legg á mig í þessu Valsara-dæmi, en ekki segja þeim það

Ragnhildur Sverrisdóttir, 19.9.2007 kl. 15:24

3 identicon

Bíddu, erum við ekki að safna medalíum!!!!

los 

Linda Ósk (IP-tala skráð) 20.9.2007 kl. 12:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband