18.9.2007 | 22:54
Kyrkingar
Við kvöldmatarborðið vorum við Kata að býsnast yfir manni, sem talar alltaf í hringi um alla hluti, ákaflega óljóst. Kata hefur ekki mikla þolinmæði með slíku fólki og sem við vorum að hlæja að hversu erfiður hann væri sagði hún: "Ég myndi kyrkja hann ef ég þyrfti að vinna með honum."
Margrét heyrði þetta og gafst ekki upp fyrr en hún var búin að fá útskýringu: Þetta var sagt í gríni og vegna þess að maðurinn var svona og svona. Auðvitað á maður ekkert að segja svona en mamma hennar var bara að útskýra að hún myndi fljótt missa þolinmæðina með manninum ef hún þyrfti að hlusta á hann tala í hringi allan daginn.
Margrét melti þetta um stund og sagði svo: "Mér finnst nú ekkert sniðugt að kyrkja hann. Þá verður hann bara hás og þá er ennþá erfiðara að skilja hvað hann segir. Geturðu ekki bara verið góð við hann og útskýrt hvernig þér líður?"
Hvernig er það eiginlega? Hverjir eiga að sjá um uppeldið á þessu heimili?
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Og þetta á bara eftir að versna. Fari það í perlusaumaðar hoppandi hafmeyjar. Dagar þínir sem gráloðinnar, grútskítugrar, grindhoraðrar grásleppu hinnar fullkomnu fyrirmyndar eru taldir eru runnir upp. I feel your pain!
hke (IP-tala skráð) 19.9.2007 kl. 00:55
Andsk***** það er ekki hægt að fá overstrike til þess að virka í þessu déskot**** M****bloggs kommentakerfi. Arrg.
hke (IP-tala skráð) 19.9.2007 kl. 00:57
Ógeðslega fyndið og hvar væri maður ef börnin væru ekki til að koma manni niður á jörðina stundum?
Edda Agnarsdóttir, 19.9.2007 kl. 12:54
Já, börnin ala okkur stundum upp. Þetta er einstaklega skemmtileg dæmisaga um slíkt. Ég flissaði upphátt við skrifborðið mitt þegar ég ætti að vera að vinna. Takkkkk
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 19.9.2007 kl. 13:26
Óborganlegt. Ef menn slyppu nú bara með hæsið, þá væri það vel og ekki vill maður vera með samstarfsmenn, sem maður skilur ekki fyrir hæsi.
Einu sinni passaði hún systir mín nú þjóðþekktan einstakling, sem þá var eitthvað 4-5 ára. Þau voru í bíltúr í djúpinu og þá benti hann á hús uppi í hlíð og spurði? Hvaða ´skrítna hús er þetta? Honum var svarað sem var: Þetta er kirkja. Nú? gall han við...Og hver er kyrkjaður þar?
Jón Steinar Ragnarsson, 19.9.2007 kl. 14:05
hke, ég þekki þig alveg nógu vel til að vita hvað það var sem þú ætlaðir að láta standa og hvað átti að strika yfir, paddan þín. Og ég ætla að biðja þig að halda þig áfram við "perlusaumaðar hoppandi hafmeyjar". Það er bannað að blóta á þessu bloggi.
Ég er afskaplega ánægð með ótakmarkaða hæfileika systranna til að stinga upp í mæðurnar, bara gaman að því. Og það er nægur tími fyrir þær að komast að því hvað raunverulega gerist þegar einhver er kyrktur. Eða kyrkjaður, jafnvel kirkjaður
Ragnhildur Sverrisdóttir, 19.9.2007 kl. 15:30
Ég hló ekki núna, heldur skellihló
Þetta er hrein snilld.
Birgitta Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 19.9.2007 kl. 21:24
Eins mikið og ég kvarta sýknt og heilagt yfir fólki sem getur ekki komið sér að hlutunum og spurt beinna spurninga heldur þarf alltaf að fara í kringum hlutina þá er ég sjálfur sekur um það stundum, en það er þegar fólk spyr mig spurninga sem mér finnst að það ætti sjálft að geta svarað með eigin hyggjuviti. Þá fer ég að beita einhvers konar díalektískri pedagógík, oft með hörmulegum afleiðingum.
Elías Halldór Ágústsson, 19.9.2007 kl. 21:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.